Hrekkjavakan hefur sest sig all rækilega í sessi á Íslandi og ég er alltaf að verða meira og meira spennt fyrir henni. Það má líklega þakka börnunum mínum sem algerlega elska allt sem viðkemur Hrekkjavökunni. Mig langaði að gera einhverja geggjaða köku í ár og ákvað að prófa að gera marengsdrauga úr marengsduftinu frá Dr. Oetker. Það er alveg ótrúlegt hvað það er auðvelt að gera marengs með þessu dufti, ég eiginlega á ekki orð yfir þessari snilld. Ég notaði svo svarta matarlitinn frá Dr. Oetker til þess að gera andlit og tók líka mjög vel. Botnarnir eru þéttir súkkulaðibotnar með góðum kryddkeim og fara sérstaklega vel með sígildu smjörkreminu. Ég setti svartan matarlit í þá til þess að gera þá extra dökka.
Það er að sjálfsögðu hægt að einfalda sér aðeins lífið og sleppa súkkulaðibráðinni og því að lita kremið með tveimur litum en það gefur henni bara alveg extra skemmtilegan svip. Þessi sómir sér vel í hvaða Hrekkjavökuboði sem er.
Innihald:
Marengsdraugar:
1 poki Marengsblanda frá Dr. Oetker
60ml. vatn
svartur matarlitur frá Dr. Oetker
Svartir súkkulaðikökubotnar:
220g hveiti
370g sykur
90g kakó
1 ½ tsk. matarsódi
1 ½ tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
2 tsk. kanill
1 tsk. pumpkin spice krydd
240ml súrmjólk
120ml jurtaolía
2 egg við stofuhita
2 tsk. vanilludropar
240ml sterkt kaffi
1 túpa svartur matarlitur frá Dr. Oetker
Smjörkrem:
500g mjúkt smjör
200g mjúkt smjörlíki
1kg flórsykur
Appelsínugulur matarlitur frá Dr. Oetker
Rauður matarlitur frá Dr. Oetker
2 msk. rjómi
1 msk. vanilludropar
1 tsk. kakó
Svört súkkulaðibráð:
40g 70% súkkulaði
55g svartir candy melts dropar
80ml rjómi
Skraut:
Marengsdraugar
Sykuraugu frá Dr. Oetker
Aðferð:
Marengsdraugar:
1. Setjið marengsduftið og vatn saman í skál og þeytið í nokkrar mínútur þar til marengsinn er orðinn stífur.
2. Setjið hann í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið toppa á bökunarpappírsklædda plötu.
3. Bakið draugana í 1 klst. við 100°C.
4. Takið draugana út og kælið alveg.
5. Notið svartan matarlit til þess að gera augu og munn. Matarliturinn er gelkenndur og þornar alveg. Geymið þar til það á að skreyta kökuna. Gott er að gera þá með góðum fyrirvara en þeir geymast mjög vel.
Botnar:
1. Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið 2 18cm smelluform og setjið til hliðar.
2. Blandið saman þurrefnum í stóra skál.
3. Blandið saman eggjum, súrmjólk, olíu og vanilludropum í aðra og hrærið saman. Hellið út í þurrefnin og hrærið saman með písk. Bætið kaffi og matarlit saman við og hrærið þar til deigið er orðið samfellt, varist að hræra of mikið.
4. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna, best er að nota vog í verkið.
5. Bakið botnana í 35-40 mín, þeir eru tilbúnir þegar prjóni sem stungið er í þá kemur hreinn upp. Takið botnana úr ofninum og leyfið þeim að kólna í 5 mínútur áður en þeir eru teknir úr forminu og settir á grind. Kælið alveg á grindinni og setjið síðan botnana í kæli.
Krem:
1. Setjið smjör og smjörlíki í hrærivélaskál og þeytið í 5-7 mín. Skafið reglulega niður á milli.
2. Setjið flórsykur, vanillu og rjóma út í og þeytið í 5 mín að lágmarki. Takið þá ca. 2 dl. af kremi frá og litið kremið í hrærivélaskálinni appelsínugult.
3. Litið kremið sem þið tókuð frá með appelsínugulum matarlit, og örlítið af rauðum og blandið kakóinu saman við.
Svört súkkulaðibráð:
1. Saxið súkkulaði og svörtu dropana og setjið í hitaþolna skál.
2. Hitið rjómann að suðu og hellið yfir súkkulaðið. Bíðið í 5 mín.
3. Hrærið blöndunni saman og setjið í plastbrúsa. Ef þið eigið ekki brúsa sem hægt er að nota er hægt að setja súkkulaðið á með skeið.
4. Bíðið í 10 mín áður en þið setjið bráðina á kökuna, hægt er að prófa þykktina með því að setja hana á brún á glasi sem snýr á hvolfi.
Samsetning kökunnar:
1. Takið botnana úr kæli og kljúfið þá í tvennt. Setjið smá klessu af kremi á miðjuna á kökudisk og leggið einn hluta ofan á hana. Smyrjið kremi á hann og leggið botn yfir. Endurtakið þar til síðasti botninn er kominn efst.
2. Smyrjið kökuna með þunnu lagi af kremi, þetta gerum við til þess að festa mylsnuna. Setjið kökuna í kæli í 30 mín.
3. Setjið dekkra kremið í sprautupoka. Smyrjið kökuna að utan með appelsínugula kreminu og dreifið úr því með stórum spaða. Sléttið að ofan.
4. Sprautið dökka kreminu í doppur neðst á kökuna og notið spaðann til þess að dreifa úr kreminu. Þegar þið eruð ánægð með verið setjið þá kökuna í kæli.
5. Þegar kremið er orðið mjög kalt er hægt að setja súkkulaðibráðina á brúnina og dreifa úr því að ofan.
6. Sprautið restinni af kreminu ofan á kökuna og raðið marengsdraugunum ofan á og í kring eftir smekk. Raðið sykuraugum á hliðarnar.
Unnið í samstarfi við Íslensk Ameríska