Í tilefni af alþjóðlega súkkulaðideginum þann 13.
September er einstaklega viðeigandi að útbúa gott súkkulaðitart og nota til
þess almennilegt súkkulaði. Það er sérlega mikilvægt að nota hágæða súkkulaði
og það í dekkri kantinum. Ég nota 45% suðusúkkulaði ásamt 70% súkkulaði frá Nóa
Siríus. Uppskriftin er einföld og það tekur í sjálfu sér ekki langan tíma að
útbúa þetta tart. Ég mæli með því að skreyta kökuna með berjum og hnetum og það
er vel hægt að nota hvaða ber sem er eða hvaða hnetur sem er. Að þessu sinni
valdi ég fallega rauð rifsber og hindber ásamt söltuðum pistasíum og það setti
algjörlega punktinn yfir i-ið. Gleðilegan súkkulaðidag!
Innihald:
Kexbotn:
200g heilhveiti kex
85g brætt ósaltað smjör
50g sykur
Fylling:
200g Suðusúkkulaði frá Nóa Siríus
160g Suðusúkkulaði 70% dökkt frá Nóa Siríus
240g rjómi
60g ósaltað smjör við stofuhita
Skreyting:
Saltaðar pistasíuhnetur, magn eftir smekk
Fersk hindber
Fersk rifsber
Aðferð:
Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið smátt. Bræðið
smjörið. Setjið kexið í skál ásamt sykri og hrærið. Setjið smjörið saman við og
blandið saman með sleikju. Áferðin á að vera lík blautum sandi.
Þjappið kexblöndunni í 20cm bökuform, bæði botn og upp á
hliðar. Kælið á meðan fyllingin er útbúin.
Saxið súkkulaðið smátt og setjið í hitaþolna skál. Skerið
smjörið í bita og setjið yfir súkkulaðið. Hellið rjómanum í lítinn pott og
hitið að suðu en varist að láta rjómann sjóða. Hellið heitum rjómanum yfir
súkkulaðið og leggið disk yfir. Látið bíða í 5 mínútur. Takið diskinn af
skálinni og hrærið saman með sleikju þar til súkkulaðiblandan er orðin slétt
með silkikenndri áferð. Takið botninn úr kæli og hellið súkkulaðiblöndunni yfir
botninn. Setjið aftur í kæli í að minnsta kosti 4 tíma eða yfir nótt.
Takið úr kæli og skreytið með hnetum og berjum. Það er
hægt að útbúa þetta tart með góðum fyrirvara og skreyta rétt áður en það er
borið fram.