Játningar sítrónusjúklings.
Ég elska allt sem heitir sítrónu eitthvað. Skiptir ekki máli hvað það er, en þessi kaka og lemon curdið hérna neðar er alveg í topp 5 yfir ómótstæðilegt sítrónugúmmelaði!
Hún er rosa fín í 2 22cm smelluform og krem á milli en mér finnst alltaf eitthvað svo girnilegt að borða “skúffukökur” sem eru ekki súkkulaðikökur.
Setti þessa því í venjulegt skúffukökuform (æji svona með loki, fæst á mörgum stöðum).
Í þessa köku þarf eftirfarandi hráefni:
2 bolla hveiti
1/2 tsk salt
3 tsk lyftiduft
1 1/2 bolli sykur
3 lítil egg (eða 2 stór)
1/2 bolli mjólk
1/2 bolli nýkreistur sítrónusafi
1/2 bolli jurtaolía (eða bráðið smjör)
1 1/2 msk rifinn sítrónubörkur (passa að taka ekkert af þessu hvíta með)
Gulur matarlitur ef vill, ég setti smá.
Krem:
100gr mjúkt smjör
250gr flórsykur
2 msk sítrónusafi
1 msk rifinn sítrónubörkur
1 tsk vanilludropar
Sigtið og blandið öllum þurrefnunum saman í stórri skál og í annari minni byrjið þið á að þeyta eggin vel saman, hrærið svo restinni af blautefnum + sítrónuberki saman við eggin. Gerið holu í þurrefnablönduna og blandið varlega saman með sleikju.
Bakið við 175°c í 25 – 30 mínútur, fer eftir ofnum.
Kremið: Blandið öllu saman í skál og þeytið mjög vel. Þið sjáið kremið hvítna eftir því sem þið þeytið lengur, gott að hafa það vel flöffí.
Skreytt eftir smekk með jarðarberjum eða einhverju sumarlegu skrauti.