Þetta eru svona ekta múffur sem gott er að bjóða upp á í kaffitímanum eftir skóla eða á köldum helgardegi með rjúkandi heitum kaffibolla.
Það tekur enga stund að henda í deigið og það þarf ekkert að vesenast með neitt krem svo það er hægt að njóta þeirra á meðan þær eru ennþá vel volgar. Þær eru ekkert of sætar heldur þrátt fyrir töluvert magn af súkkulaði. Ég nota blöndu af dökku súkkulaði og mjólkursúkkulaði en það má vel nota bara eina tegund og jafnvel bæta við hnetum ef þið viljið.
Ég nota bakstursolíuna frá Rapunzel í deigið en ég nota yfirleitt olíu í staðinn fyrir smjör í bakstri þegar ég kem því við. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að með olíunni verða kökurnar mýkri og haldast lengur mjúkar. Með smjörinu kemur auðvitað gott bragð sem erfitt er að skáka en því miður verða kökur sem innihalda bara smjör þurrar mjög fljótt og molna frekar.
Það er síðan eitt í viðbót sem ég verð að nefna. Í öllum súkkulaðibakstri er mjög mikilvægt að nota ríflegt magn af salti, svo ég tala nú ekki um ef olía er notuð í stað smjörs. Saltið ýtir undir súkkulaðibragðið og gerir allt betra!








Ég nota stóran muffins bakka og deigið passar í 12 stórar múffur. Ef þið notið minni og venjulegu gerðina eru þetta örugglega 18 múffur eða jafnvel fleiri.