- Glútenlaus uppskrift!
Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í brætt mjólkursúkkulaði og strái söxuðum salthnetum yfir. Það þarf því ekkert að baka og restin er bara smá dúllerí í eldhúsinu. Ég veit hvað það getur verið erfitt að nálgast glútenlaust gúmmelaði og því er gott að eiga þessar samlokur til að grípa í. Það er nefnilega líka hægt að geyma þær í frystinum og þá er gott að hafa þær bara í loftþéttu boxi.
Tveir kassar af kexinu gera 16 samlokur. Kremið dugir á töluvert fleiri svo ef þið viljið gera fleiri samlokur þá þarf bara aðeins meira kex og súkkulaði!