pinit

– Glútenlaus uppskrift!

Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í brætt mjólkursúkkulaði og strái söxuðum salthnetum yfir. Það þarf því ekkert að baka og restin er bara smá dúllerí í eldhúsinu. Ég veit hvað það getur verið erfitt að nálgast glútenlaust gúmmelaði og því er gott að eiga þessar samlokur til að grípa í. Það er nefnilega líka hægt að geyma þær í frystinum og þá er gott að hafa þær bara í loftþéttu boxi.

pinit
2 Vistaðu sem uppáhald

Dökkar múffur pakkaðar af súkkulaði

Erfiðleikastig: Beginner Undirbúningstími 15 mins Eldunartími 25 mins Heildartími 40 mins
Hitastig: 215  C Skammtar: 12

Innihaldsefni:

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að klippa út möffinsform úr bökunarpappír og setjið í möffins bakka í stærri kantinum, ef minni gerðin er notað þarf tvo bakka.
  2. Hitið ofninn í 215°C blástur.
  3. Saxið súkkulaðið og setjið til hliðar.
  4. Blandið þurrefnum saman í skál.
  5. Setjið egg, jógúrt, mjólk, olíu og vanilludropa saman við og hrærið í með sleif þar til deigið er samfellt.
  6. Takið hluta af súkkulaðinu frá, nóg til þess að toppa möffinskökurnar með þegar deigið er komið í formin. Blandið restinni saman við deigið.
  7. Skiptið deiginu jafnt í formin.
  8. Bakið kökurnar fyrst í 5 mínútur á 215°C en lækkið svo hitann í 175°C og bakið áfram í 14-15 mín. Ef þið gerið minni kökur styttist baksturstíminn, fylgist vel með eftir 10 mín.
  9. Kælið kökurnar í formunum í nokkrar mínútur, færið þær svo yfir á grind og njótið með góðu kaffi eða ískaldri mjólk.

Note

Ég nota stóran muffins bakka og deigið passar í 12 stórar múffur. Ef þið notið minni og venjulegu gerðina eru þetta örugglega 18 múffur eða jafnvel fleiri.

Nairn’s kexsamlokur með karamellukremi, mjólkursúkkulaði og salthnetum

Pin Recipe
2 Vistaðu sem uppáhald
Undirbúningstími 30 mins Heildartími 30 mins Erfiðleikastig: Beginner Skammtar: 16

Innihaldsefni:

Leiðbeiningar

  1. Byrjið á því að útbúa karamellukremið. Setjið smjörið og smjörlíki í skál og þeytið vel saman með handþeytara.
  2. Bætið þá saltkaramellunni saman við og þeytið vel þar til blandan verður létt og ljós.
  3. Hellið þá flórsykrinum og vanilludropunum út í og þeytið mjög vel. Bætið saltinu við að síðustu. Þeytið kremið aðeins lengur, betra er að þeyta meira en minna.
  4. Hrærið kreminu aðeins fram og til baka með sleikju til að slá úr því loftið, setjið kremið í sprautupoka með stút.
  5. Sprautið kreminu á eina kexköku og lokið með annarri. Endurtakið þar til þið eruð komin með 16 kexsamlokur.
  6. Saxið súkkulaðið gróft og setjið í hitaþolið ílát. Bræðið í örbylgjuofninum. Mér finnst best að hita það í 15 sek í einu og hræra á milli þar til það er nær alveg bráðið en ennþá hægt að finna nokkra bita ennþá. Þá tek ég skálina eða könnuna út og það klárar að bráðna á borðinu. Þannig get ég verið viss um að það verði ekki of heitt.
  7. Saxið salthneturnar og setjið til hliðar.
  8. Dýfið hverri samloku í súkkulaðið, mér finnst fallegt að hafa það aðeins á ská. Stráið söxuðum salthnetum yfir um leið og búið er að dýfa samlokunni í súkkulaðið.
  9. Kælið í 1 klst. Njótið með góðu kaffi eða glasi af mjólk.

Note

Tveir kassar af kexinu gera 16 samlokur. Kremið dugir á töluvert fleiri svo ef þið viljið gera fleiri samlokur þá þarf bara aðeins meira kex og súkkulaði!

Ertu búin/n að prófa þessa uppskrift?
Recipe Card powered by WP Delicious

Skildu eftir athugasemd

Skildu eftir athugasemd