Ljúffeng smjördeigsbaka með tómötum, ferskum mozzarella & basil pestó

Þessi ótrúlega einfalda baka er fullkomin sem léttur hádegisverður eða forréttur þegar góða gesti bera að garði. Það tekur enga stund að útbúa hana og er svo dásamlega falleg á borði. Innblásturinn fyrir bökuna kemur frá ítalska sígilda forréttinum caprese …

Heimagerðar focaccia samlokur með burrata osti & öllu uppáhalds álegginu mínu

Focaccia samlokur í allskonar útgáfum hafa farið eins og eldur um sinu á samfélagsmiðlum síðastliðin misseri. Það skal engan undra því þvílíkt lostæti sem slíkar samlokur eru. Persónulega finnst mér best að gera sem mest frá grunni í eldamennskunni og …

Úrbeinað lambalæri með osta & spínat kartöflugratíni og hvítvínsbættri skógarsveppasósu

Úrbeinuð lambalæri eru frábær valkostur á veisluborðið þegar við viljum ekki hafa of mikið fyrir eldamennskunni. Páskalærið frá Kjarnafæði er fyrir fram kryddað með ljúffengri kryddblöndu og tilbúið beint í ofninn eða á grillið. Ég bar það fram með algerlega …

Grillaðar súrdeigssamlokur með beikoni, brie og sultuðum balsamik lauk

Þessar samlokur eru sannarlega af betri gerðinni. Smávegis lúxus en samt svo einfaldar og fljótlegar. Á milli tveggja glænýrra sneiða af súrdeigsbrauði koma vænar sneiðar af brie osti, stökkt beikon, rifinn ostur, klettasalat og punkturinn yfir i-ið er sultaður balsamik laukur sem fullkomnar bragðið. Grillaðar í blússheitu samlokugrilli og bornar fram með fersku salati. Þær passa ótrúlega vel sem hádegisverður, léttur kvöldverður eða jafnvel á bröns bakka og þá jafnvel skornar í fleiri bita.

Fylltar kjúklingabringur með chili rjómaosti, beikoni og sveppum – Borið fram með tagliatelle og rjómalagaðri chili-sveppasósu

Fyrir 4-6. Þessi réttur hentar ótrúlega vel þegar tíminn er naumur en þig langar til þess að bera fram eitthvað sérstaklega gott. Ert jafnvel með matarboð en tíminn hljóp frá þér og allt í volli. Örvæntið eigi því þennan rétt …

Íslenskt aðalbláberjalamb með rauðvíns bláberjasósu og fersku salati

Það er fátt íslenskara en lambakjöt og aðalbláber. Og hvað er eiginlega betra á köldum haustdegi en fullkomlega matreitt lambalæri í aðalbláberjamarineringu og smávegis rautt í glasi? Fátt ef þú spyrð mig. Rauðvíns-bláberjasósan er framúrskarandi með lambinu og ég hafði …

Stökkt taco með bræddum osti, baunabuffi og tahini hvítlaukssósu

Vegan uppskrift Það vita margir að það er leitun að góðum vegan osti og hvað þá einhverjum sem bráðnar vel. Vegan Applewood osturinn er svo brilliant og góður. Mjúkur með dálítið reyktu bragði og passar sérstaklega vel með mexíkóskum mat. …

Hið fullkomna súrdeigsbrauð – einfaldur sveitahleifur

Uppskrift af einföldu en að mínu mati fullkomnu súrdeigsbrauði. Uppskriftin gerir 2 brauð í stærri kantinum og heildar vinnslu tími er frekar langur en afraksturinn er algjörlega þess virði. Þú þarft að eiga hressa súrdeigsmóður þegar þú byrjar en uppskriftin hjálpar þér að gera úr henni þetta dásamlega brauð.