Þegar ég panta pítsu panta ég oft hvítlaukspítsu með. Og yfirleitt endar það á því að ég borða bara hvítlaukspítsuna því mér finnst eitthvað ómótstæðilegt við einfaldleikann í þeim. Hvítlaukur, bráðinn ostur og stökkur botn. Það þarf ekkert meira er það? Þessi er því góð ein og sér en auðvitað stórkostlegur forréttur eða meðlæti með pastaréttum til dæmis. Sígilda, spænska allioli sósan sem allir þekkja, gefur bæði djúpt og gott hvítlauksbragð og gerir hana líka extra djúsí. Þessa verðið þið að prófa!
Innihald:
- 1 súrdeigspítsabotn, heimagerður eða keyptur tilbúinn
- 2-3 msk. Hvítlauks allioli frá Chovi
- Rifinn mozzarella, magn eftir smekk
- Fersk steinselja
Aðferð:
1. Byrjið á því að hita ofninn í 250°C blástur, með pítsusteini ef þið eigið. Einnig er snjallt að nota pítsaofn.
2. Fletjið út deigið með höndunum og passið að pressa ekki niður kantana.
3. Smyrjið Allioli yfir botninn og stráið rifnum osti yfir.
4. Þegar ofninn hefur náð hámarkshitastigi, setjið þá pítsuna á steininn og bakið í 5-8 mín eða þar til osturinn er orðinn gylltur.
5. Stráið saxaðri ferskri steinselju yfir og njótið!






Unnið í samstarfi við ÍSAM

