Stórkostlegt salat sem hentar sem meðlæti með allskonar mat! Niðurskorið ferskt brokkolí ásamt allskonar gúmmelaði í ljúffengri dressingu
Brokkolísalat með beikoni, trönuberjum & hunangssinneps dressingu

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Stórkostlegt salat sem hentar sem meðlæti með allskonar mat! Niðurskorið ferskt brokkolí ásamt allskonar gúmmelaði í ljúffengri dressingu

Þessi risastóra kanillengja er algjörlega stórkostleg í kaffiboðin og afmælin. Stökk að utan og lungamjúk að innan og marsípanið færir hana upp á annað stig!

Dásamleg sítrónukaka sem færir okkur vorið og sólina! Mjúk og djúsí með birkifræjum, rjómaostakremi og heimagerðu lemon curd.

Bragðgóðir og krakkavænir brauðsnúðar sem eru fullkomnir í nestið! Geymast vel í frysti og því snjallt að gera ríflegt magn til þess að eiga!

Einföld og stórkostleg öðruvísi pítsa sem er fullkomin fyrir bóndann sem kann ekki að meta súrmatinn á bóndadegi.

Ljúffeng & sumarleg máltíð sem tekur einungis 15 mínútur að græja! Forsoðin rifin fara beint á grillið, maísinn með og franskarnar hitaðar á meðan.

Grillaðar nautalundir eru fullkomnar ef þú vilt gera virkilega vel við þig í mat. Þessar steikur eru maríneraðar í stórkostlegum trufflu og black garlic kryddlegi og svo grillaðar á blússheitu grilli. Með þeim bar ég fram bakaðar kartöflur með trufflusmjöri og stórkostlega grænpiparsósu sem allir munu biðja uppskriftina að!

Einfaldur, ferskur og fljótlegur eftirréttur sem allir geta töfrað fram! Nýi hvítsúkkulaði rjómaosturinn frá MS er fullkominn með stökku kexi og ferskum berjum.