Stórkostlegt salat sem hentar sem meðlæti með allskonar mat! Niðurskorið ferskt brokkolí ásamt allskonar gúmmelaði í ljúffengri dressingu
Brokkolísalat með beikoni, trönuberjum & hunangssinneps dressingu

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Stórkostlegt salat sem hentar sem meðlæti með allskonar mat! Niðurskorið ferskt brokkolí ásamt allskonar gúmmelaði í ljúffengri dressingu

Loksins, loksins er komin uppskrift að stórkostlegum, almennilegum glútenlausum flatkökum sem líkjast okkar allra bestu íslensku flatkökum sem við elskum öll! Mjúkar, bragðgóðar og fullkomnar hvort sem er þær eru smurðar einungis með smjöri, osti eða hangikjöti.

Þegar þú vilt gera svolítið vel við þig og þína er þetta einstaklega meyra og bragðgóða lambafille fullkomin máltíð. Hunangsbakaða grænmetið passar svo sérlega vel með.

Sígildur og notalegur kvöldmatur sem stendur ávallt fyrir sínu. Tilbúnu kótiletturnar einfalda eldamennskuna til muna og meðlætið sér um sig sjálft!

Grillaðar nautalundir eru fullkomnar ef þú vilt gera virkilega vel við þig í mat. Þessar steikur eru maríneraðar í stórkostlegum trufflu og black garlic kryddlegi og svo grillaðar á blússheitu grilli. Með þeim bar ég fram bakaðar kartöflur með trufflusmjöri og stórkostlega grænpiparsósu sem allir munu biðja uppskriftina að!

Sígildar íslenskar vöfflur eins og mamma og amma gera þær. Langbestar með sultu & rjóma í félagsskap fjölskyldu og vina.

Falleg, bragðgóð og sparileg eplaterta með silkimjúku karamellukremi og kanilsteiktum eplum. Kaka sem bráðnar í munni og hentar vel við öll tækifæri.

Ólýsanlega góðar grísalundir með bragðmiklum kryddhjúp og hunangssinneps gljáa. Rjómalöguð sósan er að sama skapi líkt og hún sé af öðrum heimi, svo góð er hún!