Það nær engri átt hvað þessi réttur er ljúffengur! Og sósuna mætti jafnvel drekka með röri, svo góð er hún.
Hérna baka ég grísalundirnar í ofninum en það er einnig ljómandi gott að grilla þær en þá er gott að hafa grillbakka undir til að ná vökvanum sem kemur af þeim.
Kjötið sjálft er lungamjúkt, kryddhjúpurinn og gljáinn algjört sælgæti og rjómalöguð sósan kórónar svo allt. Ég myndi segja að þetta væri fullkominn réttur fyrir næsta matarboð eða jafnvel stefnumót heima.
Ég bar lundirnar fram með ofnbökuðu spergilkáli, bökuðum kartöflum og salati og ég er viss um að eitt rauðvínsglas með myndi ekki skemma fyrir ef þið hafið smekk fyrir því.
Innihald:
- 2 grísalundir, samtals um 1200g.
- 1 tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. nýmalaður svartur pipar
- 1 tsk. oregano
- 2 tsk. timían
- 1 tsk. rósmarín
- 1 tsk. laukduft
- ½ tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. paprika
- ólífuolía
Gljái
- 2 msk. ólífuolía
- 2 msk. hunangs-dijon sinnep frá Maille
- 2 msk. dijon sinnep frá Maille
- 1 msk. hlynsíróp
- 1 msk. Worcestershire sósa
- 1 msk. Sojasósa
Rjómalöguð kryddjurta-sinnepssósa
- 3 msk. smjör
- 3 hvítlauksgeirar, kramdir
- 1 msk. sítrónusafi
- 300ml vatn
- 1 msk. nautakraftur
- 250ml rjómi
- 2 msk. hunangs-dijon sinnep frá Maille
- 2 tsk. timían
- 1 tsk. steinselja
- Sósujafnari ef vill
- Salt og pipar eftir smekk
- Soð af lundunum
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C blástur.
- Skolið lundirnar, þerrið vel og snyrtið með því skera frá himnur og umfram fitu.
- Blandið öllum kryddum saman í skál og þekið lundirnar með blöndunni. Útbúið gljáann.
- Hitið 1-2 msk. af ólífuolíu á pönnu og brúnið lundirnar vel.
- Setjið álpappír í eldfast mót eða ofnplötu og leggið lundirnar á. Smyrjið gljáanum á lundirnar og ofnsteikið þær í 15 mín. Snúið þeim þá við, penslið restinni af gljáanum á og steikið áfram í 15 mín eða þar til kjarnhiti nær 62°C.
- Útbúið sósuna með því setja smjörið út á pönnuna ásamt hvítlauknum. Steikið laukinn í smástund í smjörinu en varist að brenna hann.
- Setjið þá sítrónusafa, vatn og nautakraft út á og hrærið vel í. Leyfið suðunni að koma upp. Bætið þá rjóma, sinnepi og kryddum út í og leyfið sósunni að malla. Ef ykkur finnst þurfa að þykkja hana er upplagt að segja ljósan sósujafnara út í.
- Þegar lundirnar eru tilbúnar í ofninum takið þær þá út og hellið vökvanum af þeim út í sósuna. Smakkið til með salti og pipar.
- Berið fram með ofnbökuðu spergilkáli, bökuðum kartöflum og salati.







Unnið í samstarfi við OJK-ÍSAM.

