Sumarlegur smoothie-sorbet með jarðarberjum & ananas

Það er ekki margt sem er sumarlegra en góður sorbet sem borðaður er í bongóblíðu. Og nú þegar margir eiga Ninja Creami ísvél er ekki úr vegi en að gefa upp einfalda og bragðgóða uppskrift af sorbet sem er án viðbætts sykurs. Ég einfalda mér lífið með því að nota Innocent smoothie í flöskum og nota hér með berjabragði. Að auki set ég með jarðarber og ananas og set aðeins hunang með til að bæta við sætu en sætumagnið má alveg minnka eða auka eftir smekk. Ég set einnig oggulítið xanthan gum sem má alveg sleppa en það gerir það að verkum að ísinn verður mýkri og minnkar magn ískristalla í ísnum. Þessi er ótrúlega vinsæll á heimilinu og krakkarnir elska hann!

Innihald:

  • 300ml Innocent smoothie með berjum (1 minni flaska)
  • 150g frosinn ananas
  • 150g frosin jarðarber
  • 50g hunang eða önnur sæta
  • ¼ tsk. xanthan gum (má sleppa en þetta minnkar umfang ísnála í ísnum og áferðin verður betri)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja ananas og jarðarber í skál og þýðið í örbylgjuofninum til hálfs.
  2. Takið ávextina út og maukið vel með töfrasprota.
  3. Hellið úr smoothie flöskunni í Ninja creami ílát og setjið ávexti, hunang og xanthan gum út í. Vinnið vel með töfrasprota og setjið í frysti. Frystið í 24 tíma.
  4. Takið ísblönduna úr frysti um 15 mínútum áður en þið ætlið að vinna ísinn. Látið þá heitt vatn renna á hliðarnar á ílátinu en varist að vatn komist ofan í það.
  5. Notið sorbet stillinguna og ef ísblandan er enn frekar þurr er snjallt að setja á „respin“ en forðist að bæta við vökva á því stigi, það er óþarfi.
  6. Njótið með ferskum ávöxtum.


Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading