Lambafille black garlic með kryddjurtasmjöri og hunangsbökuðu rótargrænmeti

Þegar ég vil gera vel við okkur hjónin kaupi ég eitthvað gott kjöt sem ég annað hvort grilla eða græja í ofninum, það fer svolítið eftir veðrinu hvort ég geri. Mig langaði að prófa lambafille í black garlic kryddlegi frá Kjarnafæði og ákvað að hvíla grillið í þetta sinn og gera aðeins öðruvísi meðlæti. Ég bakaði rótargrænmeti í hunangslegi sem kom ótrúlega vel út. Ég ákvað einnig að prófa að sleppa hefðbundinni sósu og vera með kryddjurtasmjör í staðinn. Þvílíkt sælgæti, þessi máltíð verður lengi í minnum höfð. Ótrúlega einfalt en fágað – sætan frá grænmetinu passaði sérlega vel með kryddinu af kjötinu og kryddsmjörið tengdi svo allt saman.

Innihald:

  • Lambafille í black garlic kryddlegi frá Kjarnafæði

Hunangsbakað rótargrænmeti

  • 1 poki regnbogagulrætur
  • ½ stór sæt kartafla
  • 50g smjör
  • 40g hunang
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 2 tsk. þurrkuð steinselja
  • Flögusalt og svartur pipar

Kryddjurtasmjör

  • 100g smjör
  • 1 hvítlauksrif, marið
  • 2 msk. söxuð fersk steinselja
  • 2 msk. saxað ferskt kóríander
  • Flögusalt og svartur pipar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að taka kjötið úr kæli og leyfið því að bíða í allavega 30 mín.
  2. Útbúið því næst kryddjurtasmjörið með því að bræða saman smjörið og kryddið. Setjið kryddsmjörið svo í skál og geymið í kæli þar til það á að bera það fram.
  3. Hitið ofninn í 200°C. Skolið gulræturnar vel og þerrið.
  4. Skerið gulræturnar og sætu kartöflurnar langsum í bita og setjið í skál.
  5. Bræðið saman smjör og hunang í litlum potti og bætið kryddum saman við. Hellið yfir gulræturnar og sætu kartöflurnar og veltið. Færið grænmetið yfir í eldfast mót og bakið í 25-30 mín.
  6. Færið kjötið á bretti og saltið örlítið og piprið létt yfir. Skerið aðeins í fitulagið svo það verpist ekki þegar það er grillað.
  7. Hitið grillið í góða stund, gott er að hafa það í ca. 250°C.
  8. Byrjið á því að grilla kjötið með fitu hliðina niður. Þegar puran er orðin vel grilluð og stökk, snúið þá kjötinu við og grillið áfram þar til það nær um 55°C í kjarnhita.
  9. Takið þá kjötið af grillinu og leyfið því að hvíla í 10 mín.
  10. Berið það fram með grænmetinu og kryddsmjörinu.

Unnið í samstarfi við Kjarnafæði – Norðlenska.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading