Ef það er eitthvað bakkelsi sem við Íslendingar kunnum að meta eru það nýbakaðar vöfflur með sultu og rjóma og það er akkúrat það sem við ætlum að bjóða upp á á þjóðhátíðardaginn okkar, 17. júní. Margir geta skellt í vöffludeig án þess að vera með uppskrift, er einhvern veginn í vöðvaminninu hjá fólki en líklega eru fleiri sem þiggja skothelda uppskrift sem ómögulegt er að klúðra.

Þessar eru bakaðar á mínu heimili nánast vikulega og alltaf jafn vinsælar. Það er svo auðvitað smekks atriði hvað sett er á vöfflurnar en sulta og rjómi er líklega það lang flestir velja. Hér nota ég St. Dalfour frönsku jarðarberjasultuna en hún er án viðbætts sykurs og svo fersk og góð. Svo auðvitað þeyttan rjóma og fersk ber sem gera allt betra.

Gleðilega þjóðhátíð!

Innihald:

  • 300g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • ¾ tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 2 msk. sykur
  • 100 ml. súrmjólk
  • 2 egg
  • 40 ml. olía
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 280 ml. nýmjólk
  • St. Dalfour jarðarberjasulta
  • Þeyttur rjómi
  • Fersk ber, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Blandið þurrefum saman í skál og hrærið í með písk.
  2. Setjið súrmjólk, egg, olíu og vanilludropa saman við og byrjið að hræra deigið. Setjið þá mjólkina smám saman við en með því að gera það verður það kekkjalaust.
  3. Bakið vöfflurnar í sígildu vöfflujárni og berið fram með St. Dalfour jarðarberjasultu, þeyttum rjóma og ferskum berjum.

Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading