Sumarleg vanilluterta með möndlukremi og jarðarberjum

Þessi vanilluterta er sannkallaður sumardraumur – svo mjúk með djúpu vanillubragði og dásamlegu silkimjúku möndlukremi. Á milli botnanna með kreminu eru söxuð jarðarber sem gefa kökunni ferskan keim og fullkomna bragðið. Möndlu-núggat smyrjan frá Rapunzel færir kremið algerlega upp á æðra stig og gefur mildan, hnetukenndan blæ sem passar fullkomlega með vanillubotnunum. Þessi kaka hentar vel í veislur, afmæli eða bara þegar þið viljið fagna sumrinu með einhverju ljúffengu – hér er sumar í hverjum bita, ég lofa!

Innihald:

  • 2 ½ bolli hveiti
  • ½ bolli maízena mjöl
  • 1 ½ b. sykur
  • ½ b. rapadura hrásykur frá rapunzel
  • 3 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1 ½ tsk. salt
  • ½ tsk. vanilluduft frá rapunzel
  • 1 ½ b. súrmjólk
  • 3 egg
  • 1 b. jurtaolía
  • 3 tsk. vanilludropar
  • ½ b. heitt vatn

Möndlukrem:

  • 120g vegan smjör eða smjörlíki
  • 120g mjúkt smjör
  • 2 bollar flórsykur
  • 50g Möndlu-núggat smyrja frá Rapunzel
  • ¼ tsk. möndludropar
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 250g jarðarber + auka til skrauts
  • Aðrar tegundir af berjum að auki ef vill

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 175° blástur og smyrjið þrjú 23 cm kökuform.
  2. Setjið þurrefni í skál og hrærið í með písk.
  3. Hellið súrmjólk, eggjum, olíu og vanilludropum saman við og hrærið í með písk.
  4. Bætið við heitu vatninu og hrærið saman.
  5. Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í 30 mín eða þar til prjóni sem stungið er í miðjuna á botnunum kemur hreinn upp.
  6. Á meðan botnarnir kólna er gott að huga að kreminu:
  7. Þeytið saman smjör og vegan smjör þar til. Einnig er hægt að nota einungis aðra hvora tegundina ef þið kjósið. Setjið möndlu-núggat smyrjuna saman við og þeytið áfram eða þar til blandan er orðin mjög létt í sér.
  8. Setjið flórsykurinn og dropana saman við og þeytið í alveg 5-7 mín. Eða þar til kremið er orðið létt og ljóst.

Samsetning:

  1. Saxið jarðarberin og setjið til hliðar.
  2. Setjið einn botn á kökudisk og smyrjið með kremi. Setjið söxuð jarðarber ofan á kremið og leggið annan botn ofan á. Endurtakið.
  3. Setjið síðasta botninn yfir og smyrjið þunnu lagi af kremi á hliðarnar en aðeins þykkara ofan á kökuna. Skreytið með blönduðum berjum og blómum ef vill.0020

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd