Sítrónukaka með birkifræjum, lemon curd & rjómaostakremi

Í þessari dásamlegu köku má finna sólina, vorið og ylinn. Loforð um bjarta og langa daga. Ég get hreinlega ekki beðið eftir að það fari að hlýna almennilega og þurfti því að baka þetta sólskin! Ég er alltaf svo veik fyrir öllu með sítrónum og þessi er engin undantekning. Kakan sjálf er mjúk með fersku og góðu sítrónubragði auk þess sem birkifræin gefa henni einstaka áferð og skemmtilegt tvist. Rjómaostakremið passar fullkomlega með og er ekki of sætt. Heimagerða sítrónukremið (lemon curd) setur svo punktinn yfir i-ið. Það er alls ekki flókið að baka þessa köku en það þarf að gefa sér smá tíma til að gera sítrónukremið. Það góða við það er að það geymist vel í kæli og hægt að nýta með ótal mörgu.

Sítrónukakan

  • 350g hveiti
  • 20g maízenamjöl eða kartöflumjöl
  • 2 ½ tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ½ tsk. sjávarsalt
  • 2 msk. birkifræ frá Rapunzel
  • 350g sykur
  • 2 msk. rifinn sítrónubörkur, ca. tvær sítrónur
  • 120g jurtaolía, ég notaði bökunarolíuna frá Rapunzel
  • 100g smjör, brætt
  • 4 egg við stofuhita
  • 80ml sítrónusafi, af tveimur sítrónum
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 180ml. súrmjólk, við stofuhita

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 175°C blástur. Smyrjið skúffukökuform og sníðið bökunarpappír í formið og leggið ofan í.
  2. Takið fram miðlungs stóra skál og setjið í hana hveiti, maízenamjöl, lyftiduft, matarsóda, salt og birkifræ. Hrærið saman með písk til að blanda þurrefnunum saman.
  3. Setjið sykur í stóra skál, raspið börkinn af sítrónunum og nuddið saman við sykurinn. Þannig næst fram enn betra sítrónubragð.
  4. Setjið brædda smjörið og olíuna saman við sykurinn og hrærið.
  5. Bætið þá eggjum, sítrónusafa og vanilludropa saman við og hrærið saman.
  6. Hellið helmingnum af þurrefnunum út í vökvann og hrærið þar til deigið fer rétt svo að loða saman. Bætið þá súrmjólkinni saman við og hrærið.
  7. Hellið þá restinni af þurrefnunum saman við og hrærið þar til deigið er orðið samfellt.
  8. Setjið deigið í formið og bakið í 30-35 mín. Gott er að gera sítrónukremið á meðan kakan bakast og leyfa því að kólna á sama tíma og kakan.
  9. Kælið alveg áður en kreminu er smurt jafnt á.
  10. Setjið um það bil 1 dl. af sítrónukremi með matskeið óreglulega yfir kremið og notið svo hníf eða skeið til þess að dreifa því.

Lemon curd

  • 3 sítrónur – safi + raspaður börkur
  • 1 og 1/2 bolli sykur
  • 200g smjör
  • 4 stór egg
  • 1/2 bolli sítrónusafi (af sítrónunum)
  • 1/4 tsk salt

Aðferð:

  1. Skolið sítrónurnar vel og þerrið. Raspið af þeim börkinn en passið að raspa bara gula hlutann, alls ekki fara niður í þetta hvíta, það er beiskt og ekki gott að hafa með.
  2.  Setjið sykurinn og börkinn í matvinnsluvél og blandið saman í smástund. Bætið út í matvinnsluvélina smjörinu, salti og sítrónusafanum og blandið, bætið svo einu eggi úti í einu.
  3.  Setjið blönduna í stálskál eða pott og hrærið stöðugt í yfir vatnsbaði. Hrærið stöðugt í þangað til blandan fer að þykkna. Þetta tekur svona 15 mínútur og mjög gott að gera þetta á meðan skonsurnar klára að bakast og kólna. Ekki freistast til þess að setja pottinn beint á helluna til þess að flýta fyrir, það er dæmt til þess að enda illa!
  4.  Búðingurinn er svo tilbúinn þegar hann festist á sleif. Setjið í hreina krukku og kælið. Búðingurinn þykknar og stífnar þegar hann kólnar.

Rjómaostakrem

  • 150g rjómaostur við stofuhita
  • 70g smjör, mjúkt
  • 300g flórsykur
  • ½ tsk. vanilludropar

Aðferð:

  1. Setjið rjómaostinn og smjörið saman í skál og þeytið saman þar til blandan er vel samlöguð og ljós.
  2. Sigtið helminginn af flórsykrinum saman við og byrjið að hræra varlega. Bætið við vanilludropum og þeytið vel.
  3. Sigtið restina af flórsykrinum út í, byrjið á því að hræra rólega en aukið svo hraðann og þeytið þar til kremið er orðið vel samlagað og létt.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd