Það er alltaf vinsælt að bjóða upp á hvers kyns eplapie, þau henta sérlega vel í saumaklúbba, afmæli eða aðrar veislur. Þessi útgáfa er alveg sérlega góð og djúsí og hafratoppurinn er ótrúlega stökkur og bragðgóður. Það er lítið mál að gera hana vegan en þá þarf bara að skipta smjörinu út fyrir vegan smjör. Þá er líka lítið mál að gera bökuna glútenlausa. Þá nota ég bara glútenlaust mjöl í staðinn fyrir hveitið og glútenlausa hafra.
Ég mæli auðvitað með því að bera hana fram með rjóma eða ís og þá geta það einnig verið vegan útgáfur af því.
Eplafylling
- 6 stór græn epli
- 1 msk. sítrónusafi
- ¼ bolli púðursykur
- ¾ bolli sykur
- ¼ bolli hveiti
- 2 tsk. kanill
Hafratoppur
- 1 1/2 bolli grófir hafrar
- 1/2 bolli hveiti
- 1/2 bolli púðursykur
- 1/2 bolli sykur
- 120g kalt smjör í litlum bitum
- 2 tsk kanill
Aðferð:
- Afhýðið eplin og skerið í sneiðar og setjið í stóra skál. Setjið sítrónusafann yfir og hrærið upp í eplunum.
- Setjið þurrefnin saman í skál og dreifið yfir eplin. Hrærið saman þar til öll eplin eru þakin blöndunni.
- Takið til eldfast mót og setjið eplin í mótið og dreifið hafrablöndunni yfir.
- Bakið í 35 mín við 180°C. Berið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.




