Bragðarefs marengsbomba með nóa kroppi og jarðarberjum

Já, nú er komið að almennilegri marengsbombu og þessi er ein af þeim rosalegri. Grunnurinn af henni er gömul fjölskylduuppskrift sem mamma og amma ábyggilega líka gerðu fyrir öll afmæli hér áður fyrr. Ég breytti henni aðeins og hugmyndin var þessi klassíski bragðarefur sem margir fá sér, kókosbollur, jarðarber og nóakropp. Eða er ég bara ein um að setja það í minn?

Þessi bomba er alveg fullkominn eftirréttur á páskaborðið en auðvitað líka á öll önnur veisluborð!

Innihald:

  • 4 stórar eggjahvítur við stofuhita
  • 200g sykur
  • 80g 70% súkkulaði
  • 100g kókosmjöl
  • 500ml rjómi
  • ½ dós niðursoðin jarðarber
  • Nóakropp, magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 160°C með blæstri.
  2. Þeytið eggjahvítur vel og setjið 1 msk. af sykrinum út í í einu. Endurtakið þar til sykurinn er allur kominn í skálina og hann uppleystur. Átt að geta hvolft skálinni án þess að marengsinn leki.
  3. Saxið súkkulaðið smátt og blandið því ásamt kókos saman við marengsinn með sleikju.
  4. Teiknið 3 hringi um 18cm á bökunarpappír. Skiptið deiginu í þrennt á milli og mótið botnana með sleikju eða spaða.
  5. Bakið í 40-45 mín, takið út og látið kólna alveg.
  6. Setjið sigti yfir skál og hellið jarðarberjunum í sigtið, látið renna vel af þeim.
  7. Stífþeytið rjómann og merjið jarðarberin. Blandið jarðarberjum varlega saman við rjómann.
  8. Setjið einn botn á kökudisk og smyrjið vel af rjómanum yfir, setjið nóakropp eftir smekk yfir rjómann og lokið með kökubotni. Endurtakið. Lokið með 3ja botninum og setjið restina af rjómanum yfir.
  9. Skreytið með jarðarberjum, kókos og nóakroppi.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading