Einfalt, fljótlegt og sígilt eplapie sem snjallt er að gera fyrir saumó eða afmælið! Fullkomið með ís eða rjóma.
Dásamlegt eplapie með stökkum hafratoppi

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Einfalt, fljótlegt og sígilt eplapie sem snjallt er að gera fyrir saumó eða afmælið! Fullkomið með ís eða rjóma.

Ítalskur eftirréttur sem inniheldur auðvitað ekkert kjöt þrátt fyrir nafnið! Stökku kexi, heslihnetum og þurrkuðum bláberjum blandað saman við dökkt gómsætt súkkulaði og mótað í pylsu.

Minn uppáhalds pastaréttur í glútenlausri útgáfu. Rjómalöguð pestósósa með beikoni, djúsí kjúklingi, sveppum og nóg af parmesan!

Loksins, loksins er komin uppskrift að stórkostlegum, almennilegum glútenlausum flatkökum sem líkjast okkar allra bestu íslensku flatkökum sem við elskum öll! Mjúkar, bragðgóðar og fullkomnar hvort sem er þær eru smurðar einungis með smjöri, osti eða hangikjöti.

Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í brætt mjólkursúkkulaði og …

Bókhveitigrautur er bragðgóður og næringarríkur morgunverður sem hentar sérstaklega vel fyrir þau sem þurfa að sleppa glúteni og höfrum. Toppaður með ferskum berjum, hnetusmjöri og hlynsírópi sem gerir hann ómótstæðilegan.

Einföld og þægileg glútenlaus súkkulaðiterta sem tekur enga stund að græja! Silkimjúkt ekta súkkulaðikremið og fersk jarðarber færa hana upp á æðra stig.

Einfaldur, ferskur og fljótlegur eftirréttur sem allir geta töfrað fram! Nýi hvítsúkkulaði rjómaosturinn frá MS er fullkominn með stökku kexi og ferskum berjum.