Rjómalagað spagettí með kjúklingi, beikoni og sveppum – glútenlaust!

Þessi pastaréttur er líklega sá sem ég elda oftast. Það er bara eitthvað við þessa samsetningu – kjúkling, beikon og sveppi – blandað saman í silkimjúkri rjómasósu. Nú er komin glútenlaus útgáfa af uppáhalds pastanu mínu og ég get svo svarið það að ég finn engan mun á því og þessu venjulega. Það er ótrúlega bragðgott og heldur sér vel eftir suðu. Ég mæli með því að gera bara nóg til þess að eiga afganga til að borða daginn eftir. Það er líka lítið mál að frysta afgangana sem ég mæli líka með því að gera því það er ekki alltaf hlaupið að því að grípa eitthvað fljótlegt glútenlaust með heim úr búðinni.

Innihald:

  • 450g úrbeinuð kjúklingalæri
  • Kjúklingakrydd
  • 300g DeCecco glútenlaust spagettí
  • 150g beikon
  • ½ rauðlaukur
  • 2 hvítlauksrif, marin
  • 150g sveppir
  • 1 msk. óreganó
  • 1 msk. steinselja
  • 300ml vatn
  • 1 kjúklingateningur
  • 300 ml. rjómi
  • 2 msk. rautt pestó
  • Sjávarsalt & svartur pipar
  • 1 tsk. maízena mjöl
  • 1 msk. vatn
  • Rifinn parmesan

Aðferð:

  1. Byrjið á því að krydda kjúklinginn með kjúklingakryddinu og eldið í airfryer eða steikið á pönnu þar til hann er gegnum steiktur. Setjið til hliðar.
  2. Skerið beikonið í bita og setjið á kalda þurrra pönnu. Steikið þar til það er að verða stökkt.
  3. Skerið rauðlauk og sveppi á meðan beikonið er að steikjast. Bætið því út á pönnuna þegar það er að verða tilbúið, merjið hvítlaukinn og bætið við. Steikið allt saman og bætið við kryddum.
  4. Hellið vatninu út á ásamt kjúklingateningi. Sjóðið í nokkrar mínútur eða þar til kjúklingateningurinn er uppleystur.
  5. Setjið vatn í meðalstóran pott og hleypið upp suðunni.
  6. Skerið kjúklinginn í bita og bætið út á pönnuna. Bætið rjómanum og pestóinu saman við og hrærið öllu saman. Smakkið til með salti og svörtum pipar.
  7. Hrærið maízena mjöli og vatni saman í litla skál og hellið út á. Hrærið vel saman við sósuna og látið malla í smástund á meðan sósan þykknar. Ef ykkur finnst sósan verða of þykk má hella örlitlu vatni eða rjóma út á pönnuna.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading