Saag Aloo – Indverskur grænmetisréttur með spínati, kartöflum & tómötum

Saag Aloo hefur verið einn af mínum uppáhalds indversku réttum í mörg ár. Oft nota ég þennan rétt sem meðlæti en hann stendur algerlega einn og sér sem létt máltíð. Kartöflur, spínat og tómatar sem eldaðir eru með góðum kryddum af alúð og natni, það er bara fátt sem toppar það.

Ég ber réttinn yfirleitt fram með naan brauði eða pappadums og mango chutney. Það er ótrúlega auðvelt að græja pappadums heima en ég nota þá kökurnar frá Patak‘s. Gott lag af olíu er sett á pönnu og hver kaka er steikt í nokkrar sekúndur. Það tekur enga stund og svo skemmtilegt að bera fram með indverskum mat og alls kyns mauki og sósum. Þennan verðið þið að prófa!

Innihald:

1/2kg kartöflur eða 7-8 meðalstórar

3 msk. olía

1 meðalstór laukur

1 tsk. cumin fræ

1 tsk. brún sinnepsfræ

1 tsk. kóríanderduft

2 kúfaðar tsk. curry paste frá Patak´s

3 cm bútur af fersku engiferi

1 grænn chili

1 geiralaus hvítlaukur eða 3-4 hvítlauksrif

1 dós saxaðir tómatar

200g spínat gróft saxað

1 tsk. garam masala

Salt og pipar eftir smekk

Fersk kóríander til að bera fram með

 

Aðferð:

  1. Skerið kartöflurnar í bita og sjóðið þar til þær eru næstum orðnar fullsoðnar eða í rúmlega 10 mín. Hellið þá vatninu af og leyfið að kólna aðeins.
  2. Hitið 2 msk. af olíunni á pönnu og steikið laukinn og kartöflurnar á miðlungshita þar til þær eru orðnar fallega gylltar. Færið þá kartöflurnar og laukinn á fat og setjið til hliðar.
  3. Setjið restina af olíunni út á pönnuna og bætið cumin og sinnepsfræjunum á og ristið í nokkrar sekúndur, bætið þá engiferi og chili saman við og hrærið áfram í nokkrar sekúndur.
  4. Bætið hvítlauk, curry paste og tómötum út á pönnuna og sjóðið saman í 10-15 mín.
  5. Bætið þá söxuðu spínatinu saman við og leyfið því að sjóða niður með tómötunum þar til það er alveg orðið mjúkt.
  6. Setjið kartöflu og laukblönduna út á pönnuna, kryddið með garam masala, salti og pipar og látið malla í 10 mín til viðbótar.
  7. Berið fram með fersku kóríander, brúnum basmati hrísgrjónum, pappadums og mango chutney frá Patak´s.

 

Pappadums aðferð:

 

  1. Þegar rétturinn er að malla er gott að nýta tímann og steikja pappadums kökurnar.
  2. Setjið 2-3 cm lag af jurtaolíu á þykkbotna pönnu. Pannan þarf alls ekki að vera stór og jafnvel kostur ef hún er frekar lítil en þá þarf minna magn af olíu.
  3. Setjið disk með eldhúsbréfi við hliðina á helluborðinu.
  4. Hitið olíuna í 180°C. Til að prófa hana er gott að brjóta smá bút af einni kökunni og setja í olíuna. Ef hún bubblar og steikir bútinn hratt er hún tilbúin.
  5. Setjið eina köku í einu í olíuna með töngum. Hyljið hana alla snöggt með olíu og það tekur bara 2-3 sekúndur fyrir hana að blása út og steikjast. Það er stundum gott að nota töngina til þess að þrýsta henni niður og setja þá hluta í olíuna sem ekki eru hulin.
  6. Snúið kökunni við og steikið áfram í nokkrar sekúndur. Takið hana úr olíunni með tönginni og látið olíuna renna af henni. Leggið á disk.
  7. Haldið áfram að steikja allar kökurnar en það eru 10 stk. í einum pakka og það er alveg feykinóg fyrir 4-5 fullorðna með máltíð. Passið bara hitastigið á olíunni, ef hún verður of heit geta kökurnar brunnið, þær eru ekki góðar þegar þær verða of dökkar.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan 

 

Recommended Articles

Leave a Reply

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading