Pítur með shawarma kjúklingabaunafyllingu og heimagerðri hvítlauksssósu

Ég er reglulega með kjötlausan kvöldmat sem er nú ekkert fréttnæmt í sjálfu sér en ég veit hins vegar fátt betra en þegar hann er einfaldur og fljótlegur líka.

Kjúklingabaunir í dós eru í miklu uppáhaldi vegna þess að þær bjóða upp á endalausa möguleika. Hvort sem það er hummus, pottréttir, fyllingar í vefjur og pítur, ristaðar ofan á salat eða sem snakk og jafnvel sem uppistaða í köku þá eru þær bara bestar.
Þessar pítur eru brjálæðislega einfaldar, bragðgóðar og fljótlegar. Shawarma krydd fæst í flestum verslunum en það er líka hægt að gera sína eigin blöndu ef vill. Svo er vissulega hægt að nota hvaða sósu sem er en þessi tiltekna hvítlaukssósa er í miklu uppáhaldi líka og á hana oft til í loftþéttu boxi í kælinum.

Innihald:

1 dós lífrænar kjúklingabaunir frá Rapunzel
1 msk. olía
1/2 rauðlaukur, skorinn smátt (hinn helmingurinn notaður síðar)
1 hvítlauksrif, pressað
1 msk. shawarma krydd (fæst frá nokkrum framleiðendum, skiptir ekki öllu máli hvaðan)
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
2 msk. söxuð fersk steinselja
15 cm. bútur af gúrku, skorinn í smáa bita
2-3 tómatar, skornir í bita
1/2 rauðlaukur (hinn helmingurinn) skorinn í þunnar sneiðar
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
4 pítubrauð

Aðferð:

1. Byrjið á því að gera hvítlaukssósuna og setjið hana í kæli á meðan rest er græjuð.
2. Saxið rauðlaukinn og setjið olíu á pönnu, steikið rauðlaukinn við meðalhita, varist að brenna hann.
3. Látið vatnið renna af baununum og bætið þeim út á pönnuna ásamt mörðum hvítlauknum.
4. Kryddið með shawarma kryddi og salti og pipar. Bætið við kryddi ef ykkur finnst þess þurfa. Steikið baunirnar þar til þær eru heitar í gegn og farnar að brúnast aðeins.
5. Saxið grænmetið og hitið pítubrauðin.
6. Þegar baunirnar eru tilbúnar, setjið þær í skál ásamt gúrku, tómötum, rauðlauk og ferskri
steinselju.
7. Skerið brauðin í tvennt og fyllið þær með kjúklingabaunafyllingunni, berið fram með
hvítlaukssósunni.

Heimagerð hvítlaukssósa

4 msk. majónes
3 msk. grísk jógúrt
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. tahini
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk. hunang
1 tsk. oregano
1/2 tsk. dill
2 tsk. steinselja, þurrkuð

Aðferð:

1. Setjið majónes og jógúrt í skál og hrærið saman.
2. Bætið restinni af innihaldsefnunum út í hrærið. Best er að sósan fái að taka sig í kæli í allavega 30
mín. áður en hún er borin fram.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading