Lakkrístoppa marengsterta með rjóma og lakkrískremi

Lakkrístoppar hafa verið bakaðir á all mörgum íslenskum heimilum í mörg ár og hjá mörgum koma engin jól án þeirra. Uppskriftin af toppunum er alls ekki flókin og er auðvitað algjört sælgæti. Ég ætti auðvitað ekkert að vera að fikta í hefðinni og vesenast með það sem hefur aldrei klikkað en ég gat bara ekki annað en prófað að gera marengstertu með lakkrístoppagrunni. Það er óhætt að segja að þetta sé hin rosalegasta bomba og sló svo sannarlega í gegn hjá þeim sem fengu að smakka. Ef þig vantar eitthvað nýtt í Pálínuboðið í vinnunni eða aðventuboð fjölskyldunnar verður þú að prófa þessa!

Innihald:

4 stórar eggjahvítur

1/8 tsk. cream of tartar

200g púðursykur

60g sykur

150g lakkrískurl frá Nóa Síríus

150g suðusúkkulaði frá Nóa Síríus

 

Lakkrískrem

150g lakkrískurl frá Nóa Síríus

250ml rjómi

1 tsk. síróp

50g rjómasúkkulaðidropar frá Nóa Síríus

 

Á milli og ofan á tertuna

400ml rjómi

Lakkrískurl og saxað suðusúkkulaði

 

Aðferð við marengsbotna:

  1. Takið fram hrærivél og notið helst stálskál. Gott er að setja smávegis edik í eldhúspappír og strjúka innan úr skálinni og þeytaranum áður en hafist er handa.
  2. Saxið súkkulaðið og setjið til hliðar.
  3. Teiknið tvo 20cm hringi á bökunarpappír og setjið á bökunarplötur. Hitið ofninn í 120°C blástur.
  4. Setjið eggjahvíturnar í skálina ásamt cream of tartar og byrjið að þeyta.
  5. Setjið 1 matskeið af sykri út í eggjahvíturnar í einu á meðan hrærivélin vinnur, gott að láta hana þeyta í smá tíma á milli. Endurtakið þar til sykurinn er allur kominn saman við. Þegar sykurinn er að mestu uppleystur í marengsnum og hann orðinn mjög stífur er lakkrískurlinu og söxuðu súkkulaðinu bætt út í, blandið varlega saman með sleikju.
  6. Skiptið marengsnum á milli hringjanna og smyrjið út tvo botna.
  7. Bakið botnana í 1 klst. Slökkvið þá á ofninum og látið helst kólna í ofninum.

 

Aðferð við lakkrískrem:

  1. Setjið lakkrískurl og 1 dl af rjómanum saman í pott og bræðið saman við lágan hita.
  2. Bætið rjóma smám saman við eftir því sem lakkrísinn bráðnar og kremið byrjar að þykkna.
  3. Þegar allur rjóminn er kominn saman við og allt súkkulaðið hefur bráðnað er þónokkuð eftir af lakkrís sem ekki hefur náðst að bræða. Takið þá töfrasprota og vinnið kremið með honum þar til lakkrísinn hefur blandast vel við kremið.
  4. Bætið þá sírópi og rjómasúkkulaði saman við og þegar súkkulaðið hefur bráðnað er kremið sett til hliðar og geymt þar til kakan er sett saman.

 

Samsetning:

  1. Setjið annan botninn á kökudisk. Smyrjið stofuheitu kreminu á botninn, þetta er ríflegt magn af kremi svo ég set það ekki allt. Setjið bara það magn sem ykkur hugnast (restin er geggjuð á ís!)
  2. Þeytið rjóma og setjið ¾ af honum yfir kremið og setjið hinn botninn ofan á.
  3. Smyrjið restinni af rjómanum ofan á efri botninn og stráið lakkrískurli og söxuðu suðusúkkulaði yfir.

Það er gott að láta kökuna taka sig í allavega 2-3 tíma í kæli áður en kakan er borin fram.

Unnið í samstarfi við Nóa Síríus

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading