Þorskhnakkar í kúmenraspi með dillkartöflum og heimagerðri tartarsósu

Steikur fiskur er líklega uppáhalds kvöldmatur flestra á mínu heimili og reyni að hafa hann sem oftast í matinn. Yfirleitt er það ýsa í venjulegu brauðraspi en það er samt svo gaman að prófa nýtt tvist á þennan vinsæla heimilismat. Hérna er ég með dásamlega þorskhnakka sem ég velti upp úr kúmenraspi sem er í raun bara mulið Finn Crisp hrökkbrauð með kúmeni en kúmen passar alveg lygilega vel með fiski. Dill kartöflurnar og tartarsósan gera máltíðina svo algjörlega fullkomna.

Innihald:

  • 650g þorskhnakkar, má líka vera annar hvítur fiskur
  • 50g hveiti
  • 1 stórt egg
  • 100g Finn crisp hrökkbrauð með kúmeni
  • Sítrónupipar
  • Sjávarsalt og svartur pipar, eftir smekk
  • 3-4 msk. olía
  • 30g smjör

Dillkartöflur

  • 500g kartöflur
  • 1 tsk. þurrkað dill
  • 1 msk. smjör
  • Sjávarsalt eftir smekk

Tartarsósa

  • 200g majónes
  • 1 msk. kapers
  • 1 lítill skallottlaukur
  • 1 msk. saxaður vorlaukur
  • 2 msk. saxaðar súrar gúrkur eða relish
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. sítrónusafi

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa sósuna með því að setja majónes í skál. Skolið kapersberin og saxið þau ásamt lauk og súrum gúrkum. Setjið út í majónesið og hrærið restinni af innihaldsefnunum saman við. Látið sósuna taka sig í kæli á meðan þið steikið fiskinn.
  2. Þerrið þorskhnakkana vel með eldhúsbréfi og skerið í hæfilega stóra bita.
  3. Setjið hrökkbrauðið í matvinnsluvél og vinnið smátt þar til það verður að raspi.
  4. Takið fram þrjá djúpa diska. Setjið hveiti í einn þeirra og kryddið með sítrónupipar, salti og pipar. Magn krydds fer eftir smekk. Brjótið eggið í annan og pískið vel með örlitlu af vatni eða mjólk, kryddið örlítið með salti og pipar. Setjið þá raspið á þriðja diskinn og kryddið vel með áðurnefndum kryddum.
  5. Veltið bitunum fyrst upp úr hveitinu og þaðan yfir í pískuð eggin. Færið þá bitana yfir í raspið og þrýstið vel upp úr raspinu svo það hylji alveg bitana. Leggið á disk.
  6. Setjið kartöflur í pott og sjóðið þar til þær eru mjúkar í gegn.
  7. Hitið helminginn af olíunni og smjörinu á pönnu, stillið á meðalhita. Raðið fiskbitunum á pönnuna og steikið við meðalhita í nokkrar mínútur. Snúið þá bitunum við og bætið við restinni af olíunni og smjörinu út á pönnuna. Setjið lokið á pönnuna og leyfið fisknum að malla í nokkrar mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn. Passið hitann svo raspið brenni ekki.
  8. Látið vatnið renna af kartöflunum og skrælið þær. Það má einnig skræla þær áður en þær eru soðnar. Setjið þær aftur í pottinn og setjið smjörklípu út í ásamt dilli og smá salti og veltið þeim upp úr smjörinu.
  9. Berið fiskinn fram með kartöflunum, tartarsósu og sítrónubátum.

Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading