Ostaköku croissant með franskri berjasultu, brómberjum & bláberjum

Þeir eftirréttir sem ég á hvað erfiðast með að standast eru þeir sem eiga rætur sínar að rekja á einhvern hátt til Frakklands. Ég held því fram að allir eftirréttir sem Frakkarnir gera séu algjörlega ómótstæðilegir en hvað gerist þegar við blöndum saman frönskum smjördeigshornum við franska berjasultu, silkimjúka ostakökublöndu og fersk ber?

Jú, algjört himnaríki fyrir bragðlaukana! Það er eiginlega fáránlegt hversu auðvelt það er að útbúa þennan eftirrétt og þau sem hafa fengið að smakka dreymir hann nánast dag og nótt. Þið verðið að prófa!

Innihald:

  • 6 stk. smjördeigshorn (croissant) keypt tilbúin, helst dagsgömul
  • 40 g smjör, brætt
  • 200 ml rjómi
  • 200 g rjómaostur
  • 100 g flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • Safi og börkur af hálfri sítrónu
  • 4 matarlímsblöð, má sleppa en ostakökublandan verður þá mýkri fyrir vikið
  • Rúmlega hálf krukka af blandaðri berjasultu frá St. Dalfour
  • Fersk brómber og bláber
  • Flórsykur til að dusta yfir

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 185°C blástur.
  2. Takið smjördeigshornin og fletið vel út með kökukefli og raðið þeim á ofnplötu klædda bökunarpappír.
  3. Bræðið smjörið og penslið yfir hornin. Bakið í 10 mín. og takið þau þá út úr ofninum.
  4. Á meðan smjördeigshornin kólna útbúið þið ostakökufyllinguna. Setjið rjómann í skál ásamt flórsykri og vanilludropum. Þeytið vel með handþeytara þar til rjóminn er næstum stífþeyttur.
  5. Setjið þá rjómaostinn saman við og þeytið áfram þar til blandan er vel samlöguð.
  6. Ég notaði matarlím en það er ekki þörf á því ef þið viljið ekki sprauta fyllingunni á. Matarlímið gerir það að verkum að hún verður stífari og heldur sér betur en það má alveg sleppa því. Ef þið veljið að nota það verður að byrja á því að leggja það í bleyti í kalt vatn þar til blöðin eru orðin mjúk.
  7. Setjið sítrónusafann í lítinn pott og hitið, kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum og setjið út í pottinn. Bræðið matarlímið og setjið það svo saman við ostakökublönduna með sleikju.
  8. Setjið rifna sítrónubörkinn saman við og setjið svo skálina í kæli í smástund, ef þið viljið fá meira afgerandi sítrónubragð er hægt að nota börkinn af allri sítrónunni.
  9. Smyrjið hornin með sultunni. Magn fer eftir smekk en ég notaði ca. hálfa krukku á 6 stk.
  10. Þið getið annað hvort sett ostakökublönduna í sprautupoka með dropalaga stút og sprautað henni yfir eða smurt beint ofan á sultuna. Skreytið síðan með brómberjum og bláberjum og dustið flórsykri yfir.

 

Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading