Miðjarðarhafs sardínusalat með sólþurrkuðum tómötum & ólífum

Það eru ekki margir sem vita að hægt er að nota sardínur í brauðsalöt og þau smakkast ekki ósvipað og túnfisksalöt. Mig langaði að gera einhverja skemmtilega útgáfu af slíku salati og notaði í það sardínur að hætti Miðjarðarhafsins. Ég hugsaði aðeins um hvað myndi passa vel með í salatið og ákvað að nota sólþurrkaða tómata, svartar ólífur og örlítið af chili pestó-i. Ég setti salatið síðan ofan á ristaðar súrdeigsbrauðsneiðar með extra svörtum ólífum og kokkteiltómata sneiðum. Þetta kom alveg ótrúlega vel út.

Sardínur eru nefnilega að mínu mati alveg ótrúlega vanmetið hráefni. Það er þó staðreynd að þær eru pakkaðar af næringu, fullar af Omega-3, prótíni, D- og B-vítamínum auk þess að innihalda kalk. Þær þykja einnig betri kostur en t.d. túnfiskur þar sem þær innihalda mjög lítið kvikasilfur. Ég mæli með því að stíga aðeins út fyrir þægindarammann og prófa!

Innihald:

2 dósir sardínur að hætti Miðjarðarhafsins frá Ora

2 harðsoðin egg

2-3 msk. majónes

1 tsk. chili pestó, ég notaði frá Sacla

½ rauðlaukur, smátt saxaður

½ dl. svartar ólífur, smátt saxaðar

3-4 sólþurrkaðar tómatasneiðar, smátt saxaðar

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk.

 

Aðferð:

  1. Byrjið á því að sjóða eggin og kæla niður.
  2. Saxið laukinn, ólífurnar og sólþurrkuðu tómatana og setjið til hliðar
  3. Setjið sardínurnar í sigti og síið olíuna frá og setjið þær í skál og stappið vel þannig að þær verði nánast að mauki.
  4. Skerið eggin í eggjaskera langsum og þvert og setjið saman við sardínurnar og hrærið saman.
  5. Bætið við majónesi og pestói og hrærið saman við.
  6. Setjið lauk, ólífur og sólþurrkaða tómata saman við og hrærið.
  7. Smakkið til með salti og pipar og njótið með hverju sem ykkur dettur í hug.

Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading