Heitar ídýfur hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og mínu fólki. Við þekkjum flest eðluna góðu en það er hægt að gera svo ótal margar útgáfur af slíkum ídýfum. Þessi sló þvílíkt í gegn hjá fjölskyldunni og er engan að undra. Heit bragðmikil ídýfan passar svo vel með stökkum hnetunum, kryddinu og chili-hunanginu svo það verður einhver undursamleg bragðsprengja!

Það er ótrúlega fljótlegt að henda í hana og hún verður tilbúin á örskotsstundu. Ég hafði Finn Crisp flögurnar með salti og pipar með en mér finnst að það verði að vera frekar hlutlaust bragð af því sem dýft er í svo allt fái notið sín sem best og ekki er verra ef það er hollt í leiðinni.

Innihald:

  • 200g fetaostur í kryddolíu, tegund skiptir ekki máli
  • 120g kotasæla
  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 msk. chili hunang + auka til að setja ofan á (hægt að kaupa tilbúið eða gera sjálf/ur)
  • Dukkah kryddblanda, einnig hægt að kaupa tilbúna en það má einnig nota hvaða krydd sem ykkur hugnast.
  • 1 dl. pistasíuhnetur, ristaðar
  • 1 dl. kasjúhnetur, ristaðar
  • Fersk basilika eða steinselja
  • 1 poki Finn Crisp flögur með salti & pipar

Aðferð:

1. Síið olíuna frá fetaostinum og setjið hann í lítinn blandara eða skál sem hægt er að nota með töfrasprota.

2. Setjið kotasæluna, ólífuolíuna og hunangið saman við og vinnið vel í blandarnum eða með töfrasprota þar til blandan er orðin silkimjúk og kekkjalaus.

3. Ristið hneturnar á pönnu. Takið þær til hliðar og kælið aðeins áður en þið grófasaxið þær.

4. Saxið ferskar kryddjurtir ef þið viljið nota þær.

5. Hitið ofninn í 240°C með grilli.

6. Setjið ostablönduna í lítið eldfast mót. Hitið í ofni í ca. 10 mínútur eða þar til ostablandan fer að bubbla. Takið þá út úr ofninum.

7. Dreifið hnetunum yfir heitan ostinn, þið getið sett þær allar eða bara hluta, fer eftir ykkar smekk.

8. Dreifið chili hunangi yfir hneturnar, aftur er magn eftir smekk en ég notaði líklega um 1 msk.

9. Stráið dukkah kryddi þar yfir ásamt ferskum kryddjurtum.

10. Berið fram með Finn Crisp flögum og njótið!

Chili hunang:

  • 1 dl. hunang
  • 1 tsk. chili flögur
  • 1 tsk. eplaedik

1. Setjið hunang og chili saman í lítinn pott og hitað þar til hunangið fer aðeins að bubbla. Takið þá pottinn af hellunni.

2. Setjið þá edikið saman við og látið bíða í nokkrar mínútur. Þá getið þið sett chili hunangið í litla krukku. Það geymist vel í kæli.

 

Unnið í samstarfi við Ísam.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading