Bragðmikil sveppasúpa með timían og chili

Vegan uppskrift

Haustið er komið til okkar af fullum krafti og þá er gott að útbúa góðar og kraftmiklar súpur. Þessi er alveg ótrúlega fljótleg og bragðgóð. Inniheldur fá hráefni og er þess utan vegan. Ég nota í hana kryddin frá Liquid organic en ég mæli alveg sérstaklega með því að nota þau í súpur, sósur og pottrétti. Þessi er alveg fullkomin á köldum haust og vetrardögum, sér í lagi þegar við höfum lítinn tíma og nennum helst ekki að elda.

Innihald:

2 msk. ólífuolía

1 meðalstór laukur

400g sveppir

2 tsk. fljótandi hvítlaukur frá Liquid organic

2 tsk. fljótandi timían frá Liquid organic

1 tsk. fljótandi chili frá Liquid organic

700ml vatn

2 sveppateningar

1 msk. grænmetiskraftur

1 dós kókosmjólk

Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Saxið laukinn smátt og sveppina í sneiðar.
  2. Hitið olíuna í potti og setjið sveppina og laukinn út í. Steikið þar til grænmetið fer að brúnast.
  3. Bætið þá fljótandi kryddum saman við og steikið áfram í nokkrar sekúndur.
  4. Setjið vatn, kraftinn og kókosmjólkina út í og hleypið suðunni upp. Látið súpuna malla í 10 mínútur og smakkið þá til með salti og pipar.
  5. Takið 2-3 stórar ausur af súpunni og vinnið vel í matvinnsluvél. Hellið maukaðri súpunni aftur út í pottinn. Ef vill er hægt að mauka alla súpuna en þá mæli ég með því að nota töfrasprota beint út í pottinn.

Njótið með ylvolgu nýju brauði.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan

Recommended Articles

Leave a Reply

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading