Litlar sítrónuostakökur með jarðarberjakremkexi, lemon curd & ferskum jarðarberjum

– Fyrir 6

Jarðarber og sítrónur eru í mínum huga fullkomin tvenna og ég fæ ekki nóg af desertum þar sem þetta tvennt kemur saman. Þegar ég sá nýja Kremkexið með jarðarberjafyllingunni var það auðvitað borðleggjandi að gera litlar sætar ostakökur í glasi og nota kexið í botninn. Ég get sagt ykkur að það var hárrétt ákvörðun, þvílíkt lostæti sem þessar ostakökur eru og svo fallegar á borði.

Ofan á kexbotninn set ég sítrónuostakökufyllingu sem er létt og mjúk og þar ofan á fer heimagert lemon curd og söxuð fersk jarðarber. Það er auðvitað hægt að kaupa lemon curd og nota það en ég á yfirleitt til heimagert í kæli. Ég læt uppskriftina fylgja með ef þið viljið gera það sjálf. Fersku jarðarberin setja svo punktinn yfir i-ið og gera það að verkum að þetta verður ekki of sætt.
Það er vel hægt að gera þessar með góðum fyrirvara og bera svo fram í góða veðrinu.

Innihald:

Kexbotn:
160-170g Kremkex með jarðarberjafyllingu frá Frón
35g brætt smjör

Aðferð:

1. Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið þar til það verður að mylsnu.
2. Bræðið smjörið og hellið yfir kexið og hrærið saman, áferðin minnir á blautan sand.
3. Setjið kexmylsnuna í 6 lítil glös.

Sítrónuostakökufylling:

250g rjómaostur
60g flórsykur
250ml rjómi
25g flórsykur
1 sítróna, safi og börkur
1 tsk. vanilludropar

100g lemon curd, uppskrift fylgir
300g fersk jarðarber

Aðferð og samsetning:

1.  Takið rjómaostinn úr kæli og látið standa á borði í smá stund. 15 mín nægja alveg.
2.  Setjið ostinn í skál ásamt 60g af flórsykri og þeytið saman.
3.  Setjið rjómann í aðra skál ásamt vanilludropum og stífþeytið.
4.  Raspið sítrónubörkinn og kreistið sítrónusafann úr sítrónunni. Setjið börkinn og safann út í rjómann og þeytið áfram í nokkrar sekúndur.
5.  Blandið rjómanum varlega saman við ostablönduna með sleikju.
6.  Saxið jarðarberin smátt og hafið lemon curd-ið tilbúið hjá ykkur.
7.  Takið fram 6 lítil glös og setjið kexmylsnuna í botninn, ég notaði ca. 1 msk.
8.  Setjið ostakökublöndu ofan á kexið, því næst lemon curd og á eftir söxuð jarðarber.
9.  Ofan á jarðarberjalagið kemur meira af ostakökublöndunni, þá lemon curd. Smávegis af kexmylsnunni og toppað með söxuðum jarðarberjum.

Heimagert lemon curd:

Innihald:

3 sítrónur – safi + raspaður börkur
1 og 1/2 bolli sykur
200g smjör
4 stór lífræn egg frá Nesbú
1/2 bolli sítrónusafi (af sítrónunum)
1/4 tsk. salt

1.  Skolið sítrónurnar vel og þerrið. Raspið af þeim börkinn en passið að raspa bara gula hlutann, alls ekki fara niður í þetta hvíta, það er beiskt og ekki gott að hafa með.
2.  Setjið sykurinn og börkinn í matvinnsluvél og blandið saman í smástund.
3.  Bætið út í matvinnsluvélina smjörinu, salti og sítrónusafanum og blandið.
4.  Bætið svo einu eggi úti í einu í blandarann.
5.  Setjið blönduna í stálskál eða pott og hrærið stöðugt í yfir vatnsbaði. Hrærið stöðugt í þangað til blandan fer að þykkna. Þetta tekur svona 15 mínútur á rólegum hita. Ekki freistast til þess að setja pottinn beint á helluna til þess að flýta fyrir, það er dæmt til þess að enda illa og þið endið með sítrónu ommilettu.
6.  Sítrónusmjörið er svo tilbúið þegar það festist á sleif. Setjið í hreina krukku og kælið. Smjörið þykknar og stífnar þegar það kólnar.

Unnið í samstarfi við ÍSAM.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading