- 6-8 skammtar
Litlir desertar í glösum slá alltaf í gegn og þessi útgáfa er án efa með þeim betri. Hann er bæði einfaldur og fljótlegur og hægt að undirbúa með góðum fyrirvara. Í glösin raða ég skyrfyllingu með súkkulaði og oreo mylsnu til skiptis og skreytti með hlaupormum, draugum sem ég útbjó úr sykurpúðum og svo sykuraugum. Skreytingarnar eru að sjálfsögðu ekkert heilagar og um að gera að nota ímyndunaraflið!
Innihald:
- 250g KEA vanilluskyr
- 2 msk. flórsykur
- 100g mjólkursúkkulaði
- 300ml rjómi – skipt
- 24 Oreo kexkökur – um 1 ½ pakki
- 50g smjör, brætt
- Hlaupormar
- Sykurpúðar
- Sykuraugu
- Dökkt súkkulaði
Aðferð:
- Bræðið smjörið og setjið til hliðar.
- Setjið kexið í matvinnsluvél og vinnið í fína mylsnu. Blandið smjörinu saman við.
- Bræðið súkkulaðið og 50ml af rjómanum saman yfir vatnsbaði. Látið mesta hitann rjúka úr.
- Setjið skyrið og flórsykurinn í skál og þeytið aðeins með handþeytara. Bætið súkkulaðinu saman við og þeytið áfram.
- Setjið restina af rjómanum í aðra skál og stífþeytið. Blandið honum því næst saman við skyrblönduna með sleikju.
Samsetning:
- Mér finnst best að setja skyrblönduna í sprautupoka og sprauta í glösin en þess þarf þó ekki. Setjið fyrst skyrblöndu í botninn á glösunum og þar næst oreo kexmylsnu. Ýtið aðeins niður á kexið til að þjappa.
- Setjið skyr og oreo mylsnuna til skiptis og endið á mylsnunni. Kælið.
- Ég notaði sykurpúða í draugana. Ég skar endann af þeim þversum og mótaði aðeins til og klippti í þá. Augun gerði ég með dökku súkkulaði en það er hægt að leika sér endalaust með þá möguleika.
- Skreytið til dæmis með sykuraugum, sykurpúðadraugum og hlaupormum.








Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

