Það er svo ósköp gott að eiga eina auðvelda uppskrift í handraðanum að aðeins hollara jólasælgæti. Þetta konfekt er stútfullt af næringu og inniheldur mjög lítinn viðbættan sykur. Vegan & lífrænt konfekt sem er ótrúlega fljótlegt að útbúa og inniheldur fá hráefni.
Kókos og möndlusmjörið frá Rapunzel leikur hér aðalhlutverkið en það er hægt að nota það á mjög fjölbreyttan hátt. Hér kæli ég það og fylli ferskar döðlur með því. Þvílík himnasending!
Innihald:
1 kassi ferskar döðlur
1 krukka döðlu & kókossmjör frá Rapunzel
1 plata 70% súkkulaði frá Rapunzel
Kókosmjöl frá Rapunzel, magn eftir smekk.
Aðferð:
- Byrjið á því að hræra upp kókos og döðlusmjörið og setja það í kæli. Það er best að vinna með það þegar það er stíft.
- Skerið langsum í döðlurnar og fjarlægið steininn.
- Setjið tæplega 1 teskeið af kókos og möndlusmjörinu á hverja döðlu og setjið á stóran disk eða bretti.
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgju og dreifið yfir fylltar döðlurnar.
- Setjið beint í frost eða kæli. Það er best að geyma þetta í lokuðu boxi í frystinum eða kæli þar sem kókos og döðlusmjörið lekur niður þegar það er við stofuhita.






Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

