
Matarbloggari & Bókmenntafræðingur
Halló og verið hjartanlega velkomin!
Ég heiti Valgerður en hef verið kölluð Valla síðustu áratugina og kann bara ágætlega vel við það og býð ykkur að kalla mig það líka. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem viðkemur matseld og bakstri og hef kunnað best við mig í eldhúsinu síðan ég var smákrakki. Þegar ég var heima í fæðingarorlofi með eldra barnið mitt veturinn 2010/2011 ákvað ég að byrja að blogga um mat. Ég hafði fáar fyrirmyndir, samfélagsmiðlar voru ekki til og Pinterest ekki heldur svo ég gerði bara eitthvað og útkoman var heldur frumstæð oft á tíðum. Ég vissi ekkert um ljósmyndun, stíliseringu og hvaðeina sem kemur að matarbloggi. Ég vissi hvað mér og mínum þótti gott og fannst sniðugt að halda utan um þetta áhugamál með bloggi.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og ég hef lært alveg ótrúlega mikið á þeim tæpu fimmtán árum sem hafa liðið. Í raun er það þannig að hver færsla og uppskrift kennir mér eitthvað nýtt.
Spurningar & svör:
Hvernig uppskriftir eru á síðunni?
Ég legg mikið upp úr því að uppskriftirnar mínar séu einfaldar og aðgengilegar. Ég geri töluvert af grænmetisréttum og vegan uppskriftum ásamt því bæta inn glútenlausum uppskriftum. Ástæðan fyrir því er í raun einföld, það eru alltaf fleiri og fleiri sem velja að sneiða hjá dýraafurðum vegna ýmissa ástæðna en einnig er algengt að fólk þjáist af eggja- eða mjólkurofnæmi og þá er yfirleitt skothelt að velja uppskrift sem er vegan. Glútenlausu uppskriftirnir komu síðan til vegna glútenóþols hjá mér. Í kjölfarið kom í ljós að mikil vöntun er á glútenlausum uppskriftum á íslensku og raunverulegum valkostum fyrir þau sem þurfa að sneiða hjá glúteni.
Birtir þú bara kostaðar færslur?
Nei, ég hef blandað efni á síðunni en kostuðu færslurnar gera mér það kleift að halda úti matarblogginu. Samstarf við fyrirtæki geta einnig stuðlað að því að ég prófi vörur sem ég hefði annars ekki fengið tækifæri á því að prófa og þannig eflir það þróun uppskrifta og efnis.
Eru matarblogg ekki orðin svolítið úrelt?
Svo sannarlega ekki og gróskan hefur aldrei verið meiri, bæði innanlands og utan. Með tilkomu samfélagsmiðla hefur umhverfið breyst mikið en er í grunninn alltaf það sama. Fólk vill fá nýjar hugmyndir þrátt fyrir að fara ekki alltaf eftir nákvæmlega eftir uppskriftum.
Útgáfa uppskriftabóka hefur blómstrað í seinni tíð og ég hef sérstaklega gaman að því að fletta vönduðum bókum. Raunar stenst ég sjaldan það að kaupa fallegar uppskriftabækur en markaðurinn hefur eðlilega breyst á undanförnum árum. Fólk sækir í að fletta upp uppskriftum á netinu og það auðveldar leit og aðgengi.
Ég vona að þið hafið gagn og gaman af uppskriftunum mínum. Hikið ekki við að hafa samband ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar.
Hafðu samband!
