Ó elsku bolludagur! Þessar bollur eru ekkert minna en algjörlega stórkostlegar, með heimatilbúnu vanillukremi, ferskum bláberjum og jarðarberja- og rabarbararjóma. Jú, það má nefnilega hræra hvaða sultu sem er saman við rjóma og úr verður ljómandi gott rjómakrem sem er fullkomin fylling í vatnsdeigsbollur og auðvitað allar kökur þar sem þeyttur rjómi er notaður. Ég nota hér jarðarberja- og rabarbara sultuna frá St. Dalfour en hún er sérstaklega fersk og góð og því verður rjóminn ekkert væminn. Ég mæli með því að prófa þessar ef þið viljið gera sérstaklega vel við ykkur.
Vatnsdeigsbollur:
200g vatn
80g smjör
125g hveiti
Salt á hnífsoddi
2-3 egg
Á milli:
Heimagert vanillukrem
Jarðarberja- og rabarbarasulturjómi
Fersk bláber, magn eftir smekk
Aðferð:
- Hitið vatn í potti og bætið smjöri saman við. Látið sjóða í smá stund.
- Setjið hveiti og salt saman við og hrærið rösklega saman í pottinum.
- Kælið deigið með því að setja það í hrærivélaskálina og dreifa því upp á skálarbrúnirnar.
- Setjið egg í mælikönnu og pískið saman. Ef eggin eru mjög stór er ekki víst að það þurfi alveg 3 egg svo það er betra að píska þau saman og skilja smá eftir.
- Þegar deigið er orðið volgt má byrja að hræra það með káinu og setja eggin út í í smá skömmtum.
- Hitið ofninn í 175°C blástur. Setjið deigið á plötu klædda bökunarpappír með góðu millibili. Stærðin fer eftir smekk en mér finnst best að nota sprautuboka en einnig er fínt að nota matskeiðar. Setjið plöturnar inn og bakið í að minnsta kosti 30 mín. Ég fer jafnvel alveg upp í 40 mín þar sem ég vil hafa þær frekar þurrar og þannig eru líka minni líkur á því að þær falli. Aldrei opna ofninn fyrr en eftir a.m.k 25 mín!
Jarðarberja- og rabarbararjómi
300ml rjómi
100g jarðarberja- og rabarbarasulta frá St. Dalfour
Aðferð:
- Setjið rjómann í skál og þeytið þar til hann er aðeins farinn að þykkna en á enn langt í land með að verða fullþeyttur.
- Bætið þá sultunni saman við og hrærið þar til rjóminn er orðinn stífþeyttur. Geymið í kæli þar til bera á bollurnar fram.
Vanillukrem
480ml nýmjólk
Vanillukorn úr 1 vanillustöng
4 eggjarauður
75g sykur
¼ tsk. Sjávarsalt
30g maízenamjöl
40g smjör
Aðferð:
- Kljúfið vanillustöngina eftir endilöngu og skafið kornin innan úr. Setjið mjólkina í pott og setjið vanillukornin saman við. Látið bíða smástund.
- Setjð eggjarauður, sykur, salt og maízenamjöl saman í skál og hrærið saman.
- Hitið mjólkina að suðu og hellið í smáskömmtum út í eggjarauðublönduna og hrærið vel á milli.
- Setjið blönduna út í pottinn og hitið við meðalhita og pískið vel allan tímann þar til kremið þykknar.
- Setjið smjörið saman við og hrærið.
- Hellið kreminu í gegnum sigti sem sett hefur verið yfir skál. Sléttið yfirborðið og setjið plastfilmu yfir yfirborðið svo skán myndist ekki á kremið.
- Kælið í 2-3 klst. Eða þar til kremið er alveg orðið kalt.
Samsetning:
- Skerið lok í bollurnar og setjið vanillukrem í botninn.
- Sprautið rjómanum yfir og stráið niðurskornum bláberjum þar yfir.
- Setjið lokið yfir og dustið með flórsykri.








Færslan er unnin í samstarfi við ÍSAM.

