Ef þig vantar einhvern skemmtilegan og einfaldan smárétt í partýið eða möns með ölinu á október fest eru þessir pretzel bitar fullkomnir! Mjúkir að innan og svolítið seigir en á sama tíma stökkir að utan með góðu sjávarsalti, dýfa þeim svo í einföldustu og bestu sósu í heimi sem inniheldur einungis tvö hráefni.
Það er pínu föndur að græja þessa gómsætu bita en á engan hátt flókið og ég get lofað því að það eiga allir í partýinu eftir að falla fyrir þeim.
Innihald:
- 450g hveiti (venjulegt, ekki brauðhveiti)
- 2 ½ tsk. þurrger
- 1 tsk. sykur
- 1 tsk. salt
- 60g brætt smjör
- 250ml vatn, um 37°C.
Matarsódabað:
- 1 l. vatn
- 70g matarsódi
Ofan á:
- Flögusalt
Hunangs-sinnepssósa
- 120g majónes (má vera léttmajónes)
- 3 kúfaðar tsk. hunangs djijon sinnep frá Maille
Aðferð:
- Setjið þurrefni í hrærivélaskál og hrærið aðeins í með króknum.
- Velgið vatnið og bræðið smjörið.
- Látið vélina vinna á rólegum hraða á meðan þið hellið vatninu rólega saman við. Setjið smjörið út í strax á eftir.
- Ef deigið er of þurrt, bætið þá örlitlu af volgu vatni út í deigið í einu þangað til það verður mjúkt og teygjanlegt en ekki klístrað.
- Látið vélina hnoða deigið í ca. 5 mínútur. Mótið deigið þá í kúlu, úðið skálina með olíu og setjið deigið aftur í hana. Hyljið með plastfilmu og leyfið að hefast í 90 mín á volgum stað.
- Útbúið sósuna á meðan með því að hræra saman majónesinu og sinnepinu. Geymið í kæli á meðan pretzel bitarnir eru gerðir.
- Þegar deigið er fullhefað, vigtið þá deigið og deilið þyngdinni með 24. Mótið hvern bita í kúlu og rúllið henni svo út þar til að hún verður ílöng. Raðið á bökunarplötu,
- Þegar búið er að rúlla út öllum kúlunum, setjið þá vatn í pott ásamt matarsóda og hitið að suðu.
- Hitið ofninn í 230°C blástur.
- Setið ca. 6 bita af deiginu í vatnið og látið þá sjóða í 30 sek. í vatninu, snúið þeim þá við og sjóðið áfram í 30 sek. Veiðið upp úr með fiskispaða og setjið aftur á plötuna og stráið vel af sjávarsalti yfir bitana. Endurtakið þar til allir bitarnir hafa verið soðnir upp úr matarsódabaðinu.
- Raðið bitunum á plötuna og bakið í miðjum ofni í 12-14 mín eða þar til þeir eru orðnir vel gylltir.
- Berið fram volga með hunangs-sinnepssósunni.








Unnið í samstarfi við ÍSAM.

