Það er fátt sem er eins girnilegt og nýbakað focaccia brauð. Focaccia er svolítið eins og pítsa, það er hægt að gera endalaust margar útgáfur af því. Það getur staðið eitt og sér sem máltíð en svo er hægt bera það fram sem meðlæti með t.d. pastaréttum og súpum.
Þessi útgáfa er að mínu mati ein sú allra besta. Vel þykkt, stökkt að utan en lungamjúkt að innan með nóg af rauðu pestói, bragðmiklum tómötum og ólífum. Það þarf að gefa sér smá tíma í focaccia gerð en það borgar sig margfalt að sýna smá þolinmæði.
Innihald:
- 500g brauðhveiti
- 10g sjávarsalt
- 6g þurrger – 1 ½ tsk.
- 420ml vatn, um 37°C
- 1 tsk. hunang
- 1 msk. ólífuolía + auka í formið
- 100g rautt pestó frá Sacla
- Kirsuberjatómatar
- 1 tsk. ítalskt krydd
- Svartar og grænar ólífur, heilar
- Flögusalt
Aðferð:
- Setjið þurrefni saman í skál og hrærið aðeins í með sleif.
- Hellið vatninu saman við ásamt hunangi og olíu. Blandið saman með sleif, deigið er mjög blautt og kekkjótt á þessu stigi. Hrærið bara þangað til deigið loðir vel saman.
- Setjið plastfilmu yfir skálina. Eftir 15 mínútur takið þá í kantinn á deiginu, togið upp og brjótið yfir. Gerið þetta 8x. Setjið plastfilmuna yfir og endurtakið þetta þrisvar sinnum. Þessi aðferð er mikið notuð í súrdeigsbakstri og alla jafna kölluð „stretch and fold“ á ensku.
- Þegar búið er að teygja og brjóta deigið er það látið hefast á borði í 90 mín.
- Takið þá skúffukökuform eða eldfast mót og setjið 2-3 msk. af ólífuolíu í formið og dreifið vel úr henni í botninn og upp á kantana.
- Hellið deiginu úr skálinni í formið. Brjótið vinstri hlið yfir að miðju og þá hægri hlið að miðju eins og bréf sem á að fara í umslag. Snúið þá deiginu við með sauminn niður. Togið þá deigið aðeins til í forminu.
- Setjið plastfilmu yfir formið og látið deigið hefast í 90 mín í forminu.
- Skerið kirsuberjatómata í tvennt, magn eftir smekk. Ég hef líklega notað um 15 stk. Setjið tómatana í skál, hellið aðeins af ólífuolíu yfir og stráið ítalska kryddinu yfir tómatana og blandið vel saman.
- Þegar deigið er orðið vel hefað og uppblásið setjið þá pestóið í litlum klessum yfir deigið og dreifið úr með puttunum. Potið þá tómötunum og ólífunum í deigið. Dreifið aðeins af ólífuolíu yfir allt saman og stráið flögusalti eftir smekk yfir.
- Hitið ofninn í 220°C blástur. Leyfið ofninum að hitna vel og látið brauðið hefast aðeins aftur á meðan.
- Bakið í miðjum ofni í ca. 20-25 mín. Ef brauðið fer að dökkna of mikið áður en það er fullbakað er hægt að setja álpappír yfir.








Unnið í samstarfi við ÍSAM.

