Þessi uppskrift af Toblerone ís er sú allra besta sem ég hef prófað. Ætli það séu ekki svona 15 ár síðan ég gerði hana fyrst og án undantekninga er ég beðin um uppskriftina. Ég held að ástæðan sé tvíþætt. Annars vegar nota ég eggjahvíturnar líka og stífþeyti þær og hræri varlega saman við ísblönduna í lokin og hinsvegar er bara mjög mikið Toblerone í henni, bæði brætt og saxað.

Þessi uppskrift er frekar stór og ég mæli með að setja blönduna í 2 meðalstór form eða bara skipta niður í þau form sem ykkur hugnast.

Og svo til þess að toppa þetta algerlega mæli ég með súpereinfaldri Toblerone sósu með.

Fullkomið að bjóða góðum gestum upp á þennan dásemdar ís um hátíðirnar!

Innihald:

5 egg, aðskilin

65g sykur

500ml rjómi

360g Toblerone (stórt stykki)

Aðferð:

  1. Aðskilið eggin og takið hvíturnar frá.
  2. Þeytið eggjarauður og sykur vel saman þar til létt og ljóst.
  3. Bræðið 200g af toblerone yfir vatnsbaði og saxið rest.
  4. Stífþeytið rjómann í einni skál og stífþeytið eggjahvíturnar í annarri.
  5. Kælið brædda toblerone-ið aðeins og blandið því varlega saman við eggjarauðu blönduna.
  6. Hrærið rjómanum varlega saman við eggjarauðublönduna ásamt söxuðu toblerone-i.
  7. Að síðustu hrærið þið varlega stífþeyttu eggjahvítunum vel en varlega saman við ísblönduna með sleikju. Skiptið í form og frystið í að minnsta kosti 5 tíma en helst yfir nótt.

Toblerone íssósa

200g saxað Toblerone

1 dl. rjómi

Aðferð:

Setjið rjóma í pott og hitið rjómann að suðu. Bætið toblerone-i saman við og hrærið vel saman við vægan hita. Þegar súkkulaðið er brætt er sósan tilbúin.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading