Ég og mitt heimilisfólk elskum amerískar pönnukökur og ég býð jafnt upp á þær með kaffinu eða með brönsinum. Og jafnvel í kvöldmat ef ég dett í það að hafa bröns í kvöldmat, en það er sérlega vinsælt á mínu heimili. Þessi uppskrift er sérlega einföld og lítið vesen. Bara skál og pískur, ekkert að þeyta neinar eggjahvítur eða annað vesen.
Þær eru mjúkar og flöffí, svolítið þykkar og með mildu vanillubragði.
Innihald:
2 bollar hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
3 msk sykur
1 1/2 bolli súrmjólk eða AB mjólk
50 ml nýmjólk
50 ml jurtaolía
2 stór egg
2 tsk vanilludropar
Aðferð:
- Setjið öll þurrefnin saman í skál og hrærið vel í með písk.
- Setjið því næst helminginn af súrmjólkinni, olíuna, eggin og vanilludropana saman við og hrærið þar til deigið er orðið nokkuð samlagað en ansi þykkt.
- Bætið þá við restinni af súrmjólkinni og nýmjólkinni og hrærið þar til deigið er samlagað. Varist þó að hræra deigið of mikið.
- Hitið pönnu og bakið pönnukökurnar við meðal hita.
- Berið fram með öllu því sem hugurinn girnist, fersk ber, bananar, beikon og hlynsíróp er afar vinsælt á mínu heimili.




