Þessi uppskrift er svo mikið bökuð heima hjá mér að ég skil hreinlega ekki hvers vegna ég hef ekki sett hana hingað inn fyrr. Hún er í raun bara “Snúðar, betri en úr bakaríinu” uppskriftin mín sem hefur lengið verið ein sú allra vinsælasta á síðunni.

Ég minnka sykurinn, bæti við kryddum og set pizzasósu og rifinn ost. Svo ótrúlega einfalt og krakkarnir elska þetta. Þetta er frábært nesti fyrir námskeið og nestisferðir og frystast sérlega vel.

Ég nota yfirleitt rifinn mozzarella í fyllinguna, stundum rifna ostaafganga, saxa jafnvel pepperóní eða skinku ef ég á það til. Það er endalaust hægt að leika sér með þessa uppskrift!

Innihald:

700g brauðhveiti

1 og 1/2 tsk sjávarsalt (minnkið magn ef þið notið venjulegt borðsalt)

4 tsk þurrger

30g sykur

4 dl volgt vatn

1 dl jurtaolía

2 tsk þurrkað oregano

1 tsk þurrkuð basilika

1 tsk hvítlauksduft

Pizzasósa eftir smekk – ég nota yfirleitt um 2 dl

Rifinn mozzarella eftir smekk, ég nota um 200g.

Aðferð:

  1. Setjið þurrefni saman í hrærivélaskál og hrærið aðeins með króknum. Setjið vatn og olíu saman við og látið vinna á hægum hraða í að minnsta kosti 5 mín.
  2. Takið deigið uppúr og mótið kúlu og setjið aftur í skálina og hyljið með plastfilmu. Látið hefast á hlýjum stað í 45 mín.
  3. Takið deigið uppúr og fletjið það út í ferhyrning.
  4. Smyrjið deigið vel með pizzasósu, ég gef ekki upp magn því það er algert smekksatriði en mér finnst bara best að setja það magn sem ég væri að setja á pizzabotn. Stráið 1 poka af rifnum osti yfir, má alveg vera meira.
  5. Rúllið upp lengjunni og skerið í ca. 2 – 3 cm sneiðar og setjið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
  6. Þegar allir snúðarnir eru komnir á plötu dreifi ég rifnum osti með hvítlauk yfir snúðana og set eiginlega eins mikið og ég get.
  7. Hitið ofninn í 50°C og setjið plöturnar inn. Úðið yfir snúðana með vatni og aðeins inn í ofninn. Látið hefast í ofninum í ca. 40 mín.
  8. Takið plöturnar út og hitið ofninn í 220°C. Setjið snúðana inn og bakið þar til osturinn er gylltur en það eru kannski 10 -12 mín.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading