Ég hef alltaf verið mikið fyrir vöfflur og baka þær nokkrum sinnum í mánuði. Oftast baka ég þessar hefðbundnu íslensku en mér þykir mjög gott að breyta aðeins til og baka þá gjarnan belgískar. Þessar þykku, stökkar að utan en mjúkar og flöffí að innan. Algjörlega guðdómlegar í þessari útgáfu með einföldustu og bestu saltkaramellusósu sem hægt er að útbúa og bera fram með þeyttum rjóma og hindberjum. Einnig er gott að bera fram með annars konar berjum, t.d jarðarberjum.
Innihald:
1 og 3/4 bolli hveiti
1/4 bolli maizena mjöl
2 msk sykur
1 msk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
2 stór egg
1/2 bolli jurtaolía
2 tsk vanilludropar
1 bolli súrmjólk
3/4 bolli nýmjólk
Aðferð:
- Blandið þurrefnum saman í skál og hrærið í með písk.
- Hrærið saman eggjum, vanillu, olíu, ab mjólk og mjólk og blandið smám saman við þurrefnin. Deigið á að vera þykkara en venjulegt vöffludeig.
- Setjið 1/4 bolla af deigi í hvort hólf á 2ja vöfflu belgísku vöfflujárni (fæst í flestum raftækjaverslunum)
- Setjið tilbúnar vöfflur á grind svo þær svitni ekki.
- Raðið vöfflum á diska og toppið með saltkaramellu, rjóma og berjum. Nú eða hverju sem hugurinn girnist!
Saltkaramellusósa:
200g sykur
90g smjör í bitum
1/2 bolli Rjómi frá Örnu
1 tsk sjávarsalt
Aðferð:
- Bræðið sykur við vægan hita og hrærið stöðugt í.
- Þegar sykurinn er bráðinn og orðinn vel gylltur, jafnvel svona „amber“ litaður bætið þið smjöri út í í nokkrum bitum og hrærið aðeins í, hellið rjóma varlega saman við.
- Hrærið vel og bætið sjávarsalti út í að síðustu. Setjið strax í hreinar krukkur og látið kólna alveg áður en þeim er lokað.




