Karamellupopp og kaffi hljómar ekki endilega eins og góð samsetning en satt best að segja er þetta eitt besta latté sem ég hef smakkað! Poppkornsbragðið af Oatly mjólkinni kemur skemmtilega á óvart!
Stórkostlegt karamellupopps-latté

Einfaldar & litríkar uppskriftir
Einfaldar & litríkar uppskriftir

Karamellupopp og kaffi hljómar ekki endilega eins og góð samsetning en satt best að segja er þetta eitt besta latté sem ég hef smakkað! Poppkornsbragðið af Oatly mjólkinni kemur skemmtilega á óvart!

Falleg og sparileg terta sem sómir sér vel á hvaða veisluborði sem er. Mjúkir vanillubotnar með kryddaðri eplafyllingu og karamellusmjörkremi.

Það nær ekki nokkurri átt hvað þessar kexsamlokur eru ljúffengar! Þær eru glútenlausar, ótrúlega einfaldar og geymast vel í kæli. Ég nota glútenlausa Nairn‘s súkkulaðikexið sem grunn, legg tvær kexkökur saman með silkimjúku karamellukremi, dýfi þeim í brætt mjólkursúkkulaði og …

Falleg, bragðgóð og sparileg eplaterta með silkimjúku karamellukremi og kanilsteiktum eplum. Kaka sem bráðnar í munni og hentar vel við öll tækifæri.

Stórkostlegar sparibollur sem öll falla kylliflöt fyrir. Stökkur kexhjúpur, kornflexmarengs í botninum, silkimjúkur súkkulaðirjómi og karamella á toppnum!

Tilbrigði við hinar klassískur sörur sem allir þekkja. Þéttur marsípanbotn með saltkaramellukremi, söxuðum dumle karamellum sem dýft er síðan í mjólkursúkkulaði. Algjört hnossgæti!

Þessar pönnukökur eru tilvaldar í jólabrönsinn eða jólaboðið. Karamellan er eins og fljótandi piparkökur og stökkar pekanhneturnar setja punktinn yfir i-ið.

Fallegur og sparilegur eftirréttur sem þarf dágóðan undirbúning en er fullkomlega þess virði. Silkimjúk karamellumúsin passar fullkomlega með krydduðu kremkexinu, rjómanum og kanil marengsnum. Þennan verðið þið að prófa!