Það er hefð hjá mörgum fjölskyldum að baka klassískar sörur fyrir jólin. Þessar dásamlegu með marengs-möndlubotni, smjörkremi með kakói og jafnvel kaffi sem dýft er síðan í eitthvað gott dökkt súkkulaði.

Þessar sörur eru hins vegar alls ekkert líkar þeim. Nema kannski að örlitlu leyti. Botninn er gerður með marsípani, kremið er vissulega smjörkrem en það er með saltkaramellu og söxuðum Dumle karamellum. Síðan er þeim dýft í ljúffengt mjólkursúkkulaði sem mikilvægt er að sé ekki of ljóst.

Algert sælgæti og orðin hefð hjá mörgum meðfram þessum hefðbundnu, ég mæli með því að prófa þessar!

Innihald:

Botn:

250g Ren ra marsípan

2 eggjahvítur

1 dl sykur

Krem:

200 g mjúkt smjör
2 eggjarauður
1 tsk vanilludropar
½ dl Saltkaramella (hægt að kaupa þykka karamellusósu (Dulce de leche) og bæta smá salti
2 – 3 dl flórsykur
20 Dumle karamellur, saxaðar smátt

Hjúpur

300 g Milka mjólkursúkkulaði eða annað gott mjólkursúkkulaði
Leiðbeiningar:
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Þeytið eggjahvítur með sykrinum þar til blandan er orðin eins og marengs. Rífið þá marsípanið út í með rifjárni og blandið saman með sleikju þar til blandan er eins og deig.
  3. Setjið deigið í sprautupoka með hringstút og sprautið litlar kökur á plötu klædda bökunarpappír. Hafið kökurnar sirka 3cm í þvermál. Megið alveg hafa þær stærri en þessar kökur eru eins og konfekt svo mér finnst henta betur að hafa þær minni. 0-13 mín eða þangað til þeir verða ljósgylltir
  4. Kremið: Þeytið smjörið fyrst og bætið svo rest út í fyrir utan karamellurnar. Þeytið kremið vel þar til það er létt og ljóst. Alltaf gott að þeyta krem mjög lengi. Setjið saxaðar karamellurnar út í síðast og hrærið saman með sleikju.
  5. Smyrjið kreminu á kaldar kökurnar og setjið í frysti að lágmarki 30 mín.
  6. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgjunni. Hjúpið hverja köku og frystið aftur. Geymist í frysti.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading