Ef þú ert týpan sem elskar ostakökur, eplakökur og bökur, jafnvel karamellu og svolítið kröns þá er þetta kaka sem þú bara verður að prófa! Það nær eiginlega engri átt hvað hún er góð. Uppskriftin lítur út fyrir að vera svolítið flókin en í sannleika sagt er hún það alls ekki. Eina vesenið er að þurfa að bíða eftir því að hún kólni alveg en það er algerlega þess virði.
Botninn er stökkur, klassískur ostakökubotn með kanilkexi, þar næst kemur silkimjúk ostakökufylling, ofan á það kemur gómsætt eplakökulag og til þess að toppa þetta alveg kemur þar ofan á stökkt crumble. Vantar ekki eitthvað? Jú, ofan á allt saman kemur saltkaramella!
Ef þig langar til þess að slá um þig í pálínuboðinu um jólin þá mæli ég með!
Innihald:
Kexbotn:
- 160g biscoff kex eða annað kanilkex
- 60g brætt smjör
Eplabökufylling:
- 30g smjör
- 2 græn epli, skorin smátt
- 40g púðursykur
- 40g hlynsíróp
- 1 tsk. kanill
- ¼ tsk. negill
- ¼ tsk. engifer
- ¼ tsk. múskat
- ¼ tsk. salt
- Safi úr ½ sítrónu
- 1 tsk. maízena mjöl
- 1 tsk. vatn
- 2 tsk. vanilludropar
Crumble toppur:
- 45g hveiti
- 30g fínvalsaðir hafrar
- 45g púðursykur
- 40g brætt smjör
- ½ tsk. kanill
Ostakökufylling:
- 230g rjómaostur með hvítu súkkulaði frá Gott í matinn
- 60g sykur
- 2 tsk. vanilludropar
- ¼ tsk. salt
- 60g grísk jógúrt frá Gott í matinn
- 1 egg við stofuhita
Saltkaramella:
- 200g sykur
- 2 msk. vatn
- 125ml rjómi
- 45g smjör
- 1 tsk. sjávarsalt
- Setjið sykur og vatn í þykkbotna pott og bræðið sykurinn við miðlungs hita. Varist að hræra í sykrinum, hann hleypur þá í kekki. Best er að leyfa sykrinum alveg að bráðna í friði.
- Þegar sykurinn er bráðinn og kominn fallega brúnn litur á hann hellið þið rjómanum saman við og hrærið þá rösklega þar til rjóminn samlagast sykrinum.
- Bætið þá smjörinu og saltinu saman við og hrærið þar til karamellan er samlöguð. Setjið í hreina krukku og geymið í kæli.
Leiðbeiningar:
Byrjið á því að undirbúa kexbotninn:
- Klæðið ílangt kökuform með bökunarpappír og setjið til hliðar.
- Vinnið kexið smátt í matvinnsluvél, bræðið smjörið og blandið saman. Þjappið blöndunni í botninn á forminu og farið aðeins upp á hliðarnar. Setjið botninn í kæli á meðan eplafyllingin er útbúin:
Eplafylling:
- Afhýðið og skerið eplin í litla bita.
- Setjið smjörið á pönnu og steikið eplin í smástund áður en púðursykrinum, hlynsírópinu, kryddunum, salti og sítrónusafa er bætt út á. Steikið við meðalhita þar til sykurinn er uppleystur og eplin farin að verða mjúk, þetta getur tekið allt að 10 mínútur. Hrærið þá saman maízena mjölinu og vatni og bætið við eplafyllinguna. Hrærið þar til fyllingin hefur þykknað. Takið pönnuna af hellunni og leyfið þessu að kólna.
Crumble toppur:
- Blandið öllum innihaldsefnum saman í skál og setjið inn í kæli á meðan ostakökufyllingin er gerð:
Ostakökufylling:
- Setjið rjómaostinn í skál og hrærið í með písk.
- Bætið sykri, vanillu og salti saman við og hrærið.
- Setjið þá grísku jógúrtina saman við og hrærið vel þar til allir kekkir eru farnir.
- Bætið við egginu og hrærið þar til allt er vel samblandað. Varist að hræra of mikið þó.
Samsetning:
- Byrjið á því að hita vatn í potti eða hraðsuðukatli og hita ofninn í 175°C með blæstri. Takið fram eldfast mót sem kökuformið passar í.
- Takið formið með kexbotninum úr kæli og hellið ostakökublöndunni yfir botninn. Sléttið úr með skeið.
- Setjið því næst eplakökufyllinguna yfir ostakökulagið og dreifið vel úr.
- Takið þá crumble toppinn úr kæli og myljið yfir eplin.
- Setjið formið í eldfast mót og hellið sjóðandi heitu vatni í formið þannig að það nái upp að sirka miðju formsins með ostakökunni. Passið vel að ekkert vatn fari ofan í ostakökuna.
- Setjið í formin í ofninn og bakið í 40 mín.
- Takið eldfasta mótið úr ofninum en leyfið ostakökunni að standa í vatninu í nokkrar mínútur. Takið þá formið uppúr og leyfið kökunni að ná stofuhita. Setjið hana þá í kæli og kælið yfir nótt.
- Áður en kakan er borin fram dreifið þá vel af saltkaramellu yfir kökuna, uppskrift fylgir. Hægt er að nota hvaða karamellu sem er.








Unnið í samstarfi við Gott í matinn.

