Víða um Evrópu má finna einhverskonar útgáfur af jólaglöggi. Það er meðal annars kallað glühwein, mulled wine og julegløgg og elstu heimildir um slíka drykki ná aftur Rómverja. Á miðöldum breiddist hefðin út í Evrópu og hefur verið ómissandi hluti af jólahefð margra í gegnum aldirnar. Þó svo að margt glöggið innihaldi rauðvín og jafnvel fleiri tegundir vína auk krydda, þurrkaðra og ferskra ávaxta er ekkert nauðsynlegt að hafa áfengi í því.
Þessi áfengislausa útgáfa er ekki bara bragðgóð heldur einnig stútfull af góðri næringu og vítamínum. Eiginlega alger jóla orku bomba og veitir kannski ekki af í jólaamstrinu.
Innihald:
- 500ml eplasafi með engifer, frá Beutelsbacher
- 500ml klementínusafi frá Beutelsbacher
- 200ml trönuberjasafi frá Beutelsbacher
- 200ml rauðrófusafi frá Bautelsbacher
- 2 msk. hlynsíróp frá Rapunzel
- 40g sultaður engifer frá Rapunzel
- 40g berjablanda frá Rapunzel
- 20g rúsínur frá Rapunzel
- 40g möndlur frá Rapunzel
- 4 anísstjörnur
- 15 negulnaglar
- 5 kanilstangir
Aðferð:
- Setjið öll innihaldsefni saman í pott og hleypið upp suðunni.
- Látið malla á lágum hita í a.m.k. 30 mín.
- Hellið í falleg glös og berið fram heitt.










Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

