Nú er komið að súputímanum en ég finn að ég sæki frekar í matarmiklar súpur þegar veturinn fer að hellast yfir okkur með tilheyrandi kulda og trekki.

Þessi grænmetissúpa er af mexíkóskum ættum og ekki ósvipuð mexíkósku kjúklingasúpunni sem við þekkjum flest en það er smá tvist í þessari. Í hana set ég ekkert kjöt og hentar hún því vel grænmetisætum.

Uppskriftin er stór en hana má vel frysta en geymist líka vel í lokuðu boxi í kælinum. En eins og með flestar svona súpur og pottrétti er hún alltaf best daginn eftir!

Innihald:

  • 1 laukur smátt saxaður
  • 1 græn paprika, smátt skorin
  • 1/2 sæt kartafla í teningum
  • 5 meðalstórar gulrætur í sneiðum
  • 2 dósir plómutómatar heilir
  • 1 grænn chili smátt saxaður
  • 1/2 blaðlaukur, hvíti hlutinn
  • vatn
  • 3 teningar grænmetiskraftur
  • 200g rjómaostur
  • 50g tómatpúrra
  • 3 tsk. karrý
  • 1 grænn chili smátt saxaður
  • 1/2 bréf taco krydd
  • Salt og pipar
  • 400ml rjómi frá Örnu
  • Mozzarellaostur frá Örnu eftir smekk
  • 1 msk olía

Aðferð:

  1. Saxið grænmetið og setjið það í skál. Hitið olíuna í stórum potti, ég notaði steypujárnspott en hvaða pottur sem er dugar vel. Steikið grænmetið á miðlungshita í nokkrar mínútur. Gætið þess að brenna það ekki.
  2. Setjið vatn, plómutómata, tómatpúrru, kraft, krydd og rjómaost út í pottinn og látið suðuna koma upp. Látið súpuna malla í að minnsta kosti 1 klst. Þegar þið ætlið að fara að bera súpuna fram setjið þá rjómann út í og látið hana malla í 10 mín í viðbót.
  3. Best finnst mér að bera hana fram með rifnum mozzarella og nachos flögum. Þessi er best daginn eftir eins og svo margar súpur og ekkert mál að frysta hana í boxum og taka með í nesti t.d.

 

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading