Bragðmiklir orkuklattar með dökku súkkulaði og kókos-& möndlusmjöri

Ef þið farið í göngur, skíðaferðir eða stundið útivist sem útheimtir mikla orku þá er þetta fullkomið nesti fyrir ykkur! Nú eða bara ef þið eruð eins og ég, elskið hreinlega hvers kyns granóla stykki eða klatta sem pakkaðir eru af allskonar gúmmelaði og góðri næringu.

Þessir klattar eru svo hrikalega góðir og einfaldir, innihalda náttúrulega sætu og eru auk þess vegan! Mitt allra uppáhalds, kókos- og möndlusmjörið frá Rapunzel gefur einstakt bragð og heldur þessu öllu saman ásamt banananum. Klattana er auðveldlega hægt að frysta og taka út eftir þörfum og svo er líka hægt að skipta út fræjunum fyrir aðra tegund eða möndlunum út fyrir aðrar hnetur eða jafnvel sleppa þeim og auka magn af öðru í staðinn. Þessa uppskrift er hægt að leika sér endalaust með!

Innihald:

1 stór þroskaður banani

140g möndlu & kókosmjör frá Rapunzel

3 msk. hlynsíróp

1 tsk. vanilludropar

180g grófir hafrar

50g 70% súkkulaði, smátt saxað

40g möndlur, fínt saxaðar

40g graskersfræ

40g rúsínur

25g kókos

1 tsk. kanill

¼ tsk. matarsódi

¼ tsk. salt

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 175°C blástur.
  2. Saxið möndlurnar og súkkulaðið og setjið til hliðar.
  3. Setjið bananann í skál og stappið vel. Bætið möndlu- & kókossmjöri, hlynsíróp og vanilludropa út í og hrærið vel.
  4. Setjið hafra, súkkulaði, möndlur, graskersfræ, rúsínur, kókos, kanil, matarsóda og salt í skál. Hrærið vel saman.
  5. Setjið bananablönduna saman við.
  6. Takið fram ofnplötu og setjið á hana bökunarpappír. Mótið smákökur með ískúluskeið eða tveimur matskeiðum. Þrýstið aðeins á þær svo þær fletjist út.
  7. Bakið í ca. 20 mín.
  8. Leyfið kökunum að kólna í smástund á plötunni og færið þær síðan yfir á smákökugrind og leyfið þeim að kólna alveg.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading