Þessi kaka er fullkomin fyrir alla kaffiunnendur. Bökuð í ílöngu formi eins og kryddbrauð en með silkimjúku smjörkremi og kakódufti. Dúnmjúk og bragðgóð með áberandi góðu kaffibragði. Döðlusírópið gefur kökunni mýkt og örlítið karamellubragð.
Innihald:
170g sykur
2 tsk matarsódi
90g smjör
70g döðlusíróp frá Rapunzel
2 dl sterkt kaffi
2 stór egg
Kakóduft til þess að dusta yfir kökuna
Kaffikrem:
100g mjúkt smjör
1 bolli flórsykur
Stofuheitt sterkt kaffi, magn eftir smekk.
- Setjið smjörið í skál og þeytið eins vel og hægt er.
- Bætið flórsykri saman við og setjið 1 msk af kaffi í einu þar til ykkur finnst rétt áferð vera komin. Áferðin getur orðið kornótt en haldið áfram að þeyta kremið. Ég hef líklega sett um 50ml í allt.
Aðferð:
- Blandið þurrefnum saman í meðal stóra skál.
- Bræðið smjör í litlum potti. Bætið sírópi og kaffi saman við og hrærið þar til samlagað.
- Hellið smjörblöndunni saman við þurrefnin og að síðustu bætið við eggjunum og hrærið þar til samlagað.
- Hitið ofninn í 175°C. Smyrjið ílangt kökuform miðlungsstórt eða klæðið að innan með bökunarpappír. Hellið deiginu í formið og bakið í 45 mín eða þar til prjóni sem stungið er í kökuna kemur hreinn út.
- Kælið kökuna á grind. Útbúið kremið og smyrjið yfir kökuna. Dustið kakódufti yfir.






Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

