Showing: 1 - 4 of 4 RESULTS

Grilluð trufflu & black garlic nautalund með bakaðri kartöflu, grilluðum aspas og grænpiparsósu

Grillaðar nautalundir eru fullkomnar ef þú vilt gera virkilega vel við þig í mat. Þessar steikur eru maríneraðar í stórkostlegum trufflu og black garlic kryddlegi og svo grillaðar á blússheitu grilli. Með þeim bar ég fram bakaðar kartöflur með trufflusmjöri og stórkostlega grænpiparsósu sem allir munu biðja uppskriftina að!

Grilluð nautasteik með stórkostlegu rósmarín kúrekasmjöri

Á ferðum mínum um Bandaríkin kynntist ég svokölluðu kúrekasmjöri eða „Cowboy butter“ upp á enskuna. Það er mjög einfalt að útbúa það og það passar, eins fáránlega og það kann að hljóma, ótrúlega vel með öllum grillmat. Aðal atriðið er …