Þó margir tengi spaghettí Bolognese við hversdagslega hakksósu, þá á þessi réttur rætur sínar að rekja til norður-Ítalíu þar sem „ragù alla Bolognese“ er hefðbundin kjötsósa sem þarf að sjóða hægt og með natni. Hér fær nautahakk að brúnast vel áður en það fær að krauma í tómat- og rauðvínssósu með lauk, hvítlauk og kryddum sem gefa henni dýpt og fyllingu. Ég notaði Bolla Verona rauðvín sem gefur sérlega góðan keim og fullkomnar útkomuna.
Það er reyndar svo að hið upprunalega Bolognese er yfirleitt borin fram með eggjapasta eins og tagliatelle en ég ákvað að nota frekar spaghettí sem er útbreiddara á íslenskum heimilum – og það smakkast hreint stórkostlega þegar sósan hefur fengið að þykkna og bragðið náð að taka sig. Ég mæli með því að bera réttinn fram með ferskri basilíku, ríflegu magni af rifnum parmesan og auðvitað með rauðvínsglasi. Þetta er ekki flókin uppskrift, en ég mæli með því að taka sér góðan tíma í eldamennskuna – rétt eins og Ítalir gera.
Innihald:
- 1 laukur
- 1 msk. ólífuolía
- 500g nautahakk
- 2 msk. nautakraftur
- 2 hvítlauksrif
- 150 ml. Bolla Verona rauðvín
- 1 dós niðursoðnir tómatar
- 1 tsk. sykur
- 2 tsk. Worcestershire sósa
- 1 msk. þurrkað oregano
- 2 tsk. ítölsk kryddblanda
- 50 ml. Vatn
- Salt og nýmalaður svartur pipar
- DeCecco spaghettí
- Ferskur parmesan, magn eftir smekk
- Fersk basilíka
Aðferð:
- Saxið laukinn smátt og hitið ólífuolíu rólega á pönnu. Setjið laukinn út á pönnuna og steikið við meðalhita í um 5 mín. Passið vel að laukurinn brenni ekki.
- Takið laukinn af pönnunni og hitið hana vel. Setjið hakkið út á og byrjið að brúna það, þegar það er farið að taka lit, kryddið þá vel með salti og pipar og stráið nautakraftinum yfir.
- Bætið lauknum út í hakkið og kremið hvítlaukinn saman við.
- Þegar hakkið er gegnum steikt hellið þá rauðvíninu út í og leyfið því að malla í 2-3 mín.
- Bætið þá niðursoðnu tómötunum, sykrinum (sem má sleppa en hann jafnar aðeins sýruna sem kemur frá tómötunum), Worchestershire sósunni, kryddum og vatni saman við. Best er að láta hakksósuna malla í dágóðan tíma, eða alveg um 1 klst.
- Smakkið þá sósuna til og kryddið að ykkar smekk.
- Sjóðið spaghettíið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningnum
- Berið fram með rifnum parmesan, ferskri basilíku og glasi af Bolla Verona rauðvíni.







Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

