Vegan uppskrift

Þessar bollur eru svo stórkostlegar að það nær engri átt. Stökkar að utan, lungamjúkar að innan fylltar með dásamlegu vanillukremi. Þær eru svo líka vegan! Ég notaði vanillu kaffimjólkina frá Oatly í kremið og hún gefur ótrúlega gott og djúpt vanillubragð sem fengist annars ekki með þessari hefðbundu.

Það er vissulega dálítið föndur að gera svona bollur og það væri haugalygi ef ég segði ykkur að þetta væri ægilega fljótlegt en þetta er algerlega þess virði að dúlla sér við. Og þó að bolludagurinn sé nýafstaðinn kemur það þessum bollum ekkert við. Þær eru góðar alla daga alltaf! Eða þið vitið, kannski of mikið að gæða sér á þeim alla daga en þið verðið að prófa!

Innihald:

  • 500g hveiti
  • 25g kartöflumjöl
  • 60g sykur
  • 2 tsk. þurrger
  • 1 tsk. salt
  • 200ml. Oatly haframjólk
  • 80ml. aquafaba (vökvi af kjúklingabaunum í dós)
  • 60g vegan smjör, brætt
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • 1l. jurtaolía eða 500g palmín og 500ml jurtaolía. Til steikingar á bollunum.
  • 2 dl. sykur til að velta bollunum upp úr

Vanillukrem:

  • 400ml Oatly ikaffe haframjólk með vanillu
  • 70g sykur
  • 50g maízena mjöl
  • ¼ tsk. vanillukorn, ég notaði frá Rapunzel
  • ¼ tsk. sjávarsalt
  • 50g vegan smjör
  • Túrmerik á hnífsoddi, má sleppa en gefur aðeins gulan lit

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa vanillukremið: Setjið vanillu haframjólkina, sykur, maízenamjöl, vanillu og salt í pott og hitið rólega upp. Setjið túrmerik með hérna ef þið viljið nota það. Hrærið með písk allan tímann.
  2. Þegar kremið byrjar að þykkna lækkið þá niður í lægsta og haldið áfram að hræra í 3-4 mín.
  3. Takið þá pottinn af hellunni og hrærið smjörinu saman við. Hellið kreminu strax í gegnum sigti til að losna við kekki ef einhverjir eru. Setjið kremið í grunna skál og hyljið með plastfilmu þannig að hún er látin liggja alveg ofan á kreminu. Kælið alveg.
  • Útbúið deigið í berlínarbollurnar: Blandið saman þurrefnum í hrærivélaskál og setjið krókinn á. Hrærið aðeins í til þess að blanda þeim saman.
  • Blandið haframjólk, aquafaba, vanillu og sítrónusafa og hitið upp í 39°C. Bræðið smjörið.
  • Hellið vökvanum smám saman út í á meðan vélin vinnur á rólegum hraða.
  • Þegar deigið er að koma saman, bætið þá bræddu smjörinu saman við og hnoðið í vélinni í 6-8 mínútur.
  • Takið þá deigið upp úr skálinni og mótið í kúlu. Spreyið smá olíuspreyi í skálina og leggið deigið aftur í hana. Hyljið með plastfilmu og hefið á volgum stað í 1 og ½ tíma.
  • Klippið út bökunarpappír fyrir bollurnar, gott er að hafa hverja bollu á sínum litla ferning þegar þær eru hefaðar í annað sinn. Þannig er minni hætta á að þær falli þegar þær eru teknar af plötunni og lagðar í heita olíuna við steikingu. Ég hef ferningana ca. 12×12 cm.
  • Eftir fyrri hefun er deigið tekið úr skálinni og bollur mótaðar. Gott er að hafa hverja bollu um 75g. Ég rúlla hverja bollu þannig að góð spenna myndast á yfirborðinu og legg ofan á pappír sem ég set á bökunarplötu.
  • Þegar ég hef lokið við að rúlla upp bollunum legg ég plastfilmu varlega yfir og hefa þær áfram í 45 mín.
  • Þegar bollurnar eru fullhefaðar er olía (og palmín ef þið notið það með) sett í þykkbotna pott með hitamæli. Hitið olíuna í 175°C.
  • Takið til matprjóna eða eitthvað svipað til að snúa bollunum með, töng til að fjarlægja bökunarpappírinn, fiski- eða djúpsteikingarspaða og grind sem sett er ofan á eldhúsbréf. Gott er að hafa allt við höndina sem þarf að nota þegar verið er að djúpsteikja.
  • Þegar olían er orðin nægilega heit setjið þá 3 bollur í pottinn með bökunarpappírnum sem þær hefuðust á. Fjarlægið pappírinn.
  • Steikið bollurnar í 2-2 1/2 mín á hvorri hlið og setjið á grind þegar þær eru tilbúnar. Betra er að setja þær á grind frekar en eldhúsbréf því þannig haldast þær stökkar. Passið að halda olíunni í 175°C því ef hitinn er hærri geta þær brunnið áður en þær bakast að fullu en lægri hiti veldur því að þær draga í sig meiri olíu.
  • Klárið að steikja allar bollurnar og þegar mesti hitinn er rokinn úr þeim setjið þá sykurinn í skál og veltið bollunum upp úr honum og setjið á fat. Þegar þær eru orðnar kaldar í gegn er hægt að fylla þær með kreminu,
  • Setjið vanillukrem í sprautupoka með löngum stút. Stingið smá gat á hverja bollu með einhverju áhaldi og fyllið hverja bollu með kremi.

Unnið í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Skildu eftir athugasemd

Discover more from Valla Gröndal

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading