Þessi kjúklingaréttur er ótrúlega einfaldur en algjörlega stórkostlegur á sama tíma. Hann er bragðmikill, húðin stökk en kjötið lungamjúkt. Svo ótrúlega franskur þar sem hráefnin eru fá en spila vel saman. Soðið af kjúklingnum er nóg sem sósa enda er gott að nota vel af marineríngunni. Meðlætið þarf heldur ekki að vera flókið en það er ljómandi gott að vera með ofnsteiktar kartöflur, ferskt salat og jafnvel baguette brauð með. Og áreiðanlega ekki mjög slæmt að vera með kalt hvítvín með svona spari.
Innihald:
- 6 kjúklingalæri með beini
- 200g Maille hunangs-dijon sinnep
- 2 msk. fljótandi hunang
- 8 hvítlauksgeirar, marðir
- 1 tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. nýmalaður svartur pipar
- 2 tsk. þurrkað timían
- Nokkrar greinar af fersku timían og fersk steinselja ef vill.
Aðferð:
- Byrjið á því að snyrta kjúklinginn og skera af umframfitu. Þerrið hann vel með eldhúspappír.
- Hrærið saman hunangs-dijon sinnepi, hunangi, hvítlauk, salti, pipar og timían. Penslið kjúklingalærin á báðum hliðum en skiljið um 1/3 eftir af marineríngunni.
- Hitið ofninn í 200°C með blæstri.
- Hitið pönnu sem má fara í ofn, steypujárnspanna er fullkomin ef þið eigið. Ef þið eigið ekki slíkar pönnur er hægt að nota venjulega og færa svo kjúklinginn yfir í eldfast mót.
- Raðið kjúklingalærunum á pönnuna með fituhliðina niður. Steikið við meðalhita í 5-6 mínútur eða þar til húðin er orðin vel steikt og stökk. Snúið þá kjúklingnum og steikið áfram í 1-2 mínútur.
- Penslið restinni af marineríngunni yfir kjúklinginn og setjið hann inn í ofn. Bakið í 20-25 mín eða þar til kjúklingurinn nær 73°C í kjarnhita.
- Stráið fersku timíani og steinselju yfir kjúklinginn áður en hann er borinn fram.
- Það er ljómandi gott að bera kjúklinginn fram með steiktum kartöflu, fersku salati og jafnvel hrísgrjónum. Soðið af kjúklingnum er ljómandi góð sósa með.








Unnið í samstarfi við ÍSAM.

